Isavia þarf að afhenda Aðalheiði yfirstrikaðar upplýsingar: „Svo mér endist ævin til að reka þetta mál“

Áttundi úrskurð­ur­inn í máli Kaffi­társ gegn Isavia er fall­inn og þarf rík­is­fyr­ir­tækið að afhenda gögn um útboðið á versl­un­ar­rými í Leifs­stöð sem fram fór árið 2014.

Isavia þarf að afhenda Aðalheiði yfirstrikaðar upplýsingar: „Svo mér endist ævin til að reka þetta mál“
Hættir ekki Aðal­heiður Héð­ins­dóttir ætlar ekki að gefa eftir í mála­rekstri sínum gegnum Isavia. Mynd: ODD STEFAN

 

„Það kemur bara enn og aftur fram að við eigum að fá afhent gögn frá Isavia sem við höfum ekki ennþá fengið. Isavia strik­aði yfir upp­lýs­ingar í gögnum sem við fengum og við vildum fá þessi gögn óyf­ir­strikuð,“ segir Aðal­heiður Héð­ins­dóttir, eig­andi og fram­kvæmda­stjóri Kaffi­társ, aðspurð um úrskurð sem úrskurð­ar­nefnd um upp­lýs­inga­mál kvað upp fyrr í mán­uð­inum í deilu fyr­ir­tæk­is­ins við rík­is­fyr­ir­tækið Isavia.  

Tengslin við KSEitt af því sem vakið hefur mikla athygli í Leifs­stöðv­ar­mál­inu er að fyr­ir­tæki tengt Kaup­fé­lagi Skag­firð­inga og Sig­ur­jóni Rúnari Rafns­syni, aðstoð­ar­for­stjóra þess, var valið fram yfir Kaffitár.

Kaffitár hefur átt í ára­löngu stappi við Isavia um veit­ingu upp­lýs­inga um útboð á verls­un­ar­rými í Leifs­stöð sem fram fór árið 2014. Í útboð­inu fékk Kaffitár ekki að leigja áfram versl­un­ar­rými í Leifs­stöð og var fyr­ir­tækið Lag­ar­d­ére Travel Retail ehf., sem er í eigu fransks flug­vall­ar­fyr­ir­tækis og íslenskra aðila sem meðal ann­ars tengj­ast Kaup­fé­lagi Skag­firð­inga.

Aðal­heiður segir hins vegar að Isavia hafi sótt um frestun rétt­ar­á­hrifa vegna úrskurð­ar­ins en þetta þýðir að rík­is­fyr­ir­tækið mun ekki þurfa að veita Kaffi­tári aðgang að gögn­unum strax. „Isavia hefur farið fram á frestun rétt­ar­á­hrifa, alveg eins og þeir hafa gert áður. Þetta er átt­undi úrskurð­ur­inn sem kemur og alltaf er þetta okkur í vil,“ segir Aðal­heiður. 

Í úrskurð­inum er fall­ist á að Kaffitár eigi að fá hluta af gögn­unum um útboðið óyf­ir­strikuð en að hluta er fall­ist á Isavia þurfi ekki að veita fyr­ir­tæk­inu aðgang að öllum gögn­unum í mál­inu. 

„Við viljum bara að þetta rík­is­fyr­ir­tæki
fari að lögum eins og aðrir“

Aðal­heiður segir aðspurð að hún ætli ekki að hætta mála­rekstr­inum gegn Isavia þrátt fyrir að málið hafi dreg­ist nokkuð á lang­inn. „Ég borða bara góðan og hollan mat og er í rækt­inni og sef vel svo að mér end­ist ævin til að reka þetta mál. Það er bara þannig. Við viljum bara að þetta rík­is­fyr­ir­tæki fari að lögum eins og aðrir. Ef það reyn­ist rétt að svo hafi verið, með engum útstrik­unum, þá er það bara þannig og við fáum að sjá það,“ segir Aðal­heiður og bætir því við hún telji að taktík Isavia í mál­inu sé að reyna að þæfa það og flækja eins mikið og mögu­legt sé til að þreyta Kaffitár í rekstri máls­ins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Isavia

InnlentIsavia

Isavia fær 6,3 millj­arða lán­aða til við­bótar: „Óvissan er engu að síður enn þá veru­leg“

Evrópski fjár­fest­inga­bank­inn hefur sam­þykkt að veita Isavia lán upp á 40 millj­ónir evra sem sam­svarar um 6,3 millj­örðum króna. Þetta kemur fram á vef Isavia. Þar segir að um loka­á­drátt vegna láns upp á 100 millj­ónir evra sem bank­inn veitti félag­inu árið 2018 sé að ræða, lánið er veitt til fram­kvæmda á Kefla­vík­ur­flug­velli. „Þessi fjár­mögnun kemur til við­bótar við fjóra...
InnlentIsavia

Færri far­þegar um Kefla­vík­ur­flug­völl á nýju ári

Reiknað er með að fjöldi far­þega sem fara um Kefla­vík­ur­flug­völl árið 2020 verði tæp­lega 6,7 millj­ónir og fækki því um 7,6% ef miðað er við árið 2019. Þetta kemur fram í far­þeg­a­spá Isavia fyrir árið 2020. Heild­ar­fjöldi komu­far­arfar­þega verður tæpar 2,6 millj­ónir, sem er 1,4% sam­dráttur frá í fyrra, sam­kvæmt spánni. Annað árið í röð fækkar skiptifar­þegum mest. Þeir fara...
InnlentIsavia

Sam­komu­lag WOW og Isavia vegna millj­arð króna skuldar stóðst allt fram í febr­úar

Wow og Isavia lögðu drög að sam­komu­lagi í lok sept­em­ber 2018 vegna millj­arð króna skuld flug­fé­lags­ins á þeim tíma, sem greiða átti í 13 aðskildum afborg­unum sem myndu teygja sig yfir síð­ustu tvo mán­uði árs­ins 2018 og fyrstu 11 mán­uði árs­ins 2019. Skilum sam­kvæmt sam­komu­lag­inu stóðu fram í febr­úar. Morg­un­blaðið greindi frá.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár