Almannatengslafyrirtækið fékk 3,7 milljónir í september

Burson Mar­steller fór fram á það fyrir hönd íslenskra stjórn­valda að fjöl­miðlar fjar­lægðu eða breyttu fréttum og pistlum þar sem fall rík­is­stjórn­ar­innar var sett í sam­hengi við upp­reist æru barn­a­níð­inga, upp­lýs­inga­leynd í málum þeirra og bar­áttu íslenskra kvenna gegn þöggun.

Almannatengslafyrirtækið fékk 3,7 milljónir í september

Almanna­tengla­fyr­ir­tækið Burson Mar­steller fékk 3,7 millj­ónir fyrir að vernda orð­spor Íslands á erlendri grundu í sept­em­ber þegar stjórn­ar­sam­starfi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar var slitið. Störf fyr­ir­tæk­is­ins fyrir íslensk stjórn­völd fól meðal ann­ars í sér að farið var fram á að fjöl­miðlar fjar­lægðu eða breyttu fréttum og pistlum þar sem fjallað var um tengsl stjórn­ar­slit­anna á Íslandi við upp­reist æru barn­a­níð­inga og upp­lýs­inga­leynd í málum þeirra.

Stjórn­ar­ráðið er með fastan samn­ing við Burson Mar­steller og greiðir fyr­ir­tæk­inu um 3,7 millj­ónir á mán­uði, en í sept­em­ber var mikið kapp lagt á að hafa áhrif á umfjöllun erlendra miðla um fall rík­is­stjórn­ar­innar og aðdrag­anda þess. 

Stundin greindi frá því í byrjun októ­ber að Burson Mar­steller hefði meðal anars reynt að fá stór­blaðið Washington Post til að breyta eða fella út setn­ingu um þátt kvenna í atburð­unum sem leiddu til þess að rík­is­stjórnin féll. Meg­in­krafa rík­is­stjórn­ar­innar var þó sú að pist­ill um málið yrði fjar­lægður en Washington Post varð ekki við þeirri beiðni. RÚV greindi svo frá því þann 6. októ­ber að Burson Mar­steller hefði aðstoðað íslensk stjórn­völd við að gera athuga­semdir við umfjöllun hjá a.m.k. 11 fjöl­miðlum.

Upplifa framhald af þögguninni

Stundin sendi utan­rík­is­ráðu­neyt­inu upp­lýs­inga­beiðni um málið og fékk svar í gær. Þar kemur fram að stjórn­ar­ráðið sé með fastan samn­ing við Burson Mar­steller sem hljóði upp á 27.000 sterl­ingspund á mán­uði eða rúmar 3,7 millj­ónir íslenskra króna á verð­lagi dags­ins í dag. Ofan á þetta bæt­ist umsýslu­kostn­aður, en verðið hafi verið óbreytt frá árs­lokum 2014. 

Konurnar sem voru beittar kyn­ferð­is­of­beldi af Robert Downey á ung­lings­ár­unum hafa furðað sig á fram­göngu rík­is­stjórn­ar­innar og almanna­tengsla­fyr­ir­tæk­is­ins í kjöl­far stjórn­ar­slit­anna.

„Það að krefja Washington Post um að fjar­lægja pistil þar sem fjallað er um #höf­um­hátt og mót­mæli okkar er auð­vitað bara enn ein til­raunin til þögg­unar,“ sagði Nína Rún Bergs­dóttir í við­tali sem birt­ist í nýjasta tölu­blaði Stund­ar­innar. „Þarna er verið að reyna að kæfa okkar raddir og alla þá bar­áttu sem við höfum háð und­an­farna mán­uði. Þetta er líka í anda þeirrar miklu van­virð­ingar sem við höfum upp­lifað frá full­trúum Sjálf­stæð­is­flokks­ins allt frá því að bar­áttan hófst.“

„Hvern er verið að vernda með þessu bréfi?“

„Rík­is­stjórn lands­ins féll, ekki vegna pen­inga, ekki vegna póli­tísks ágrein­ings at­vinnu­stjórn­mála­manna, held­ur vegna þess að kon­ur höfðu hátt,“ segir í ályktun sem Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands sendi frá sér þann 15. sept­em­ber. Svo virð­ist sem íslensk stjórn­völd hafi reynt, í sam­starfi við Burson Mar­steller, að koma í veg fyrir að þessi túlkun á atburða­rás stjórn­ar­slit­anna nái fót­festu utan land­steina. Í tölvu­pósti sem fyr­ir­tækið sendi Washington Post fyrir hönd rík­is­stjórn­ar­innar var gerð sér­stök athuga­semd við slíka frá­sögn og hún sögð afbökun á raun­veru­leik­anum. „Hvern er verið að vernda með þessu bréfi? Barn­a­níð­inga og póli­tíkusa? Það er alveg ljóst að þetta bréf er ein­göngu skrifað til að verja orð­spor Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ekki ann­arra,“ sagði Anna Katrín Snorra­dóttir, einn af brota­þolum Roberts Downey, þegar Stundin ræddi við hana um málið á dög­unum.

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata, hefur sett fram sams konar gagn­rýni. Nýlega tjáði hún sig um bar­áttu kvenn­anna á Facebook og sagði rík­is­stjórn­ina vera farna „að beita brögðum og ráðum og almanna­tengsla­fyr­ir­tækjum til þess að falsa sög­una og draga úr trú­verð­ug­leika þeirra á alþjóða­vísu.“

Sérstakt Íslandsteymi vinnur með ráðuneytum

Guð­laugur Þór Þórð­ar­sonutan­rík­is­ráð­herra

Störf Burson-Mar­steller fyrir íslensk stjórn­völd hafa verið af ýmsu tagi und­an­farin ár. 

„Stjórn­ar­ráðið hefur átt sam­starf við alþjóð­lega almanna­tengsla­fyr­ir­tækið Burson-Mar­steller í London um víð­tæka ráð­gjöf, grein­ing­ar­vinnu, almanna­tengsl og fjöl­miðla­vöktun frá haustinu 2012 með hléum; fyrri hluta áranna 2014 og 2016,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar. 

Nokkrir almanna­tenglar hjá Burson-Mar­steller mynda sér­stakt Íslands­teymi sem hefur unnið með starfs­mönnum og emb­ætt­is­mönnum margra ráðu­neyta að marg­vís­legum verk­efnum, svo sem í tengslum við afnám gjald­eyr­is­hafta, upp­lýs­inga­miðlun vegna vog­un­ar­sjóða, frí­versl­un­ar­mál og hval­veiðar. Beinast störf fyr­ir­tæk­is­ins fyrir stjórn­ar­ráðið oftar en ekki að fleiri en einum mála­flokki sam­tímis.

„Mán­að­ar­greiðslur til Burson-Mar­steller eru fastar og hljóðar samn­ing­ur­inn (e. retainer contract) upp á 27.000 sterl­ingspund á mán­uði, eða rúmar 3.7 millj­ónum kr. á núver­andi verð­lagi, auk umsýslu­kostn­aðar, og hefur verðið verið óbreytt frá árs­lokum 2014,“ segir í svar­inu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár