Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar fallin vegna leyndar í máli barnaníðings

Björt fram­tíð sleit stjórn­ar­sam­starf­inu vegna trún­að­ar­brests sem teng­ist máli Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar, dæmds kyn­ferð­is­brota­manns. Faðir for­sæt­is­ráð­herra veitti Hjalta með­mæli en því var haldið leyndu fyrir almenn­ingi, Alþingi og sam­starfs­flokkum sjálf­stæð­is­manna í rík­is­stjórn.

Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar fallin vegna leyndar í máli barnaníðings
Rík­is­stjórn Íslands Mynd: Stjórnarráðið

Stjórn Bjartrar fram­tíðar sam­þykkti á fundi sínum í gær­kvöldi að slíta stjórn­ar­sam­starf­inu við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Viðreisn. Tilkynnt var um málið á Facebook-síðu flokks­ins eftir að fundi lauk, en ástæða stjórn­ar­slit­anna er alvar­legur trún­að­ar­brestur innan rík­is­stjórn­ar­innar vegna máls Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar. Seinna í nótt sendi þing­flokkur Við­reisnar frá sér yfir­lýs­ingu þar sem kallað er eftir því að boðað verði til kosn­inga sem fyrst. 

Hjalti Sigurjón var dæmdur í fimm og hálfs árs fang­elsi árið 2004 fyrir að hafa brotið gegn stjúp­dóttur sinni nær dag­lega í tólf ár. Stundin greindi frá því þann 25. ágúst síð­ast­lið­inn að Hjalti hefði fengið upp­reist æru, og í gær var stað­fest að Benedikt Sveins­son, faðir Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra, væri einn þeirra sem veitt hefðu Hjalta með­mæli vegna umsóknar hans.

Dóms­mála­ráðu­neytið og þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa beitt sér af mik­illi hörku fyrir því að leynd ríki um nöfn umsækj­enda um upp­reist æru, með­mæl­enda þeirra og máls­með­ferð dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins. Þetta var gert undir þeim for­merkjum að um við­kvæmar per­sónu­upp­lýs­ingar væri að ræða sem ættu lögum sam­kvæmt að fara leynt.

Engu að síður við­ur­kenndi dóms­mála­ráð­herra, Sigríður Andersen, í gær­kvöldi að hafa greint Bjarna Bene­dikts­syni frá því í sumar að faðir hans hefði veitt Hjalta Sig­ur­jóni með­mæli. Svo virð­ist sem þetta hafi verið drop­inn sem fyllti mæl­inn hjá Bjartri fram­tíð. 

Í yfir­lýs­ingu Við­reisnar, sem send var út um fjög­ur­leytið í nótt, kemur fram að fréttir gær­dags­ins af máls­með­ferð um upp­reist æru hafi vakið sterk við­brögð meðal flokks­manna líkt og í sam­fé­lag­inu öllu. „Vinnu­brögð í málum af þessu tagi verða að stand­ast stranga skoðun þar sem ekk­ert er undan dregið. Það er skylda stjórn­valda gagn­vart almenn­ingi og þolendum þeirra alvar­legu glæpa sem málið varða,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

4
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár