Þöggunin tók á sig nýjar myndir eftir stjórnarslitin

Glódís Tara, Nína Rún Bergs­dóttir, Anna Katrín Snorra­dóttir og Halla Ólöf Jóns­dóttir stóðu fyrir átak­inu #höf­um­hátt og léku lyk­il­hlut­verk í atburða­rásinni sem end­aði með því að stjórn­ar­sam­starfi Bjartrar fram­tíðar, Við­reisnar og Sjálf­stæð­is­flokks­ins var slitið. Stundin ræddi við þær um fram­göngu ráða­manna, eft­ir­köst stjórn­ar­slit­anna, við­brögð Alþingis við bar­áttu þeirra og til­raunir stjórn­valda til að breiða yfir óþægi­legan raun­veru­leika. 

Konurnar sem voru beittar kyn­ferð­is­of­beldi af lög­mann­inum Robert Downey á ung­lings­ár­unum segj­ast hafa orðið fyrir von­brigðum með þær ákvarð­anir sem teknar voru á síð­ustu dögum þings­ins í sept­em­ber. Alþingi hafi ekki svarað ákalli brota­þola um breyt­ingar. Jafn­framt upp­lifa þær skila­boð rík­is­stjórn­ar­innar til erlendra fjöl­miðla, þar sem farið var fram á að umfjöllun um stjórn­ar­slitin og upp­reist æru barn­a­níð­inga yrði fjar­lægð, sem fram­hald af þögg­un­inni í sumar. 

Eins og Stundin greindi frá í byrjun mán­aðar reyndi almanna­tengsla­fyr­ir­tæki, sem starfar fyrir utan­rík­is­ráðu­neytið, að fá stór­blaðið Washington Post til að breyta eða fella út setn­ingu um þátt kvenna í atburð­unum sem leiddu til þess að stjórn­ar­sam­starf­inu var slitið. Meg­in­krafa rík­is­stjórn­ar­innar var þó sú að pist­ill um málið yrði fjar­lægður en Washington Post varð ekki við þeirri beiðni. Stundin hefur óskað eftir upp­lýs­ingum um kostnað vegna almanna­tengsla­her­ferð­ar­innar og bíður enn eftir svörum. Í fyrstu vís­uðu utan­rík­is­ráðu­neytið og fjár­mála­ráðu­neytið hvort á annað en upp­lýs­inga­beiðnin er nú í vinnslu hjá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu.

Ráðu­neytið vildi leyndDóms­mála­ráðu­neytið tók þá ákvörðun að synja alfarið upp­lýs­inga­beiðnum um mál Roberts Downey og gekk lengra í upp­lýs­inga­leynd en lög heim­ila.

Þær Anna Katrín Snorra­dóttir, Glódís Tara, Halla Ólöf Jóns­dóttir og Nína Rún Bergs­dóttir áttu lyk­il­þátt í umræð­unni sem fór af stað í sumar undir myllu­merk­inu #höf­um­hátt.

Rík­is­stjórn­ar­sam­starfi Bjartrar fram­tíðar, Við­reisnar og Sjálf­stæð­is­flokks­ins var svo slitið í kjöl­far frétta­flutn­ings af með­mælum Bene­dikts Sveins­sonar, föður for­sæt­is­ráð­herra, fyrir barn­a­níð­ing­inn Hjalta Sigurjón Hauksson.

Þetta og úrskurður úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál þess efnis að dóms­mála­ráðu­neytið hefði ekki fylgt lögum þegar ákveðið var að leyna upp­lýs­ingum um upp­reist æru Roberts Downey og ann­arra kyn­ferð­is­brota­manna, setti fram­göngu stjórn­ar­þing­manna og æðstu ráða­manna í nýtt sam­hengi og vakti mikla reiði í sam­fé­lag­inu.

Var sagt frá með­mæla­bréf­inuBjarni Bene­dikts­son fékk að vita af með­mælum föður síns fyrir Hjalta Sigurjón Hauksson á undan brota­þolum og almenn­ingi.

Kornið sem fyllti mæl­inn og sprengdi rík­is­stjórn­ina var svo þegar dóms­mála­ráð­herra við­ur­kenndi í sjón­varps­við­tölum að hafa sagt for­sæt­is­ráð­herra frá með­mælum föður hans í júlí. Þannig kom í ljós að Bjarni Bene­dikts­son hafði einn fengið upp­lýs­ing­arnar um með­mæla­bréf föður síns – upp­lýs­ingar sem flokk­uð­ust sem við­kvæmt trún­að­ar­mál sam­kvæmt laga­túlkun ráðu­neyt­is­ins – meðan brota­þolum, fjöl­miðlum og almenn­ingi var neitað um þær.

„Rík­is­stjórn lands­ins féll, ekki vegna pen­inga, ekki vegna póli­tísks ágrein­ings at­vinnu­stjórn­mála­manna, held­ur vegna þess að kon­ur höfðu hátt,“ segir í ályktun sem Kven­rétt­inda­fé­lag Íslands sendi frá sér þann 15. sept­em­ber.

Íslensk stjórn­völd hafa hins vegar reynt að koma í veg fyrir að þessi túlkun á atburða­rás stjórn­ar­slit­anna nái fót­festu utan land­steina. Í tölvu­pósti sem Burson Mar­steller, ein virtasta almanna­tengsla­stofa heims, sendi Washington Post fyrir hönd rík­is­stjórn­ar­innar var gerð sér­stök athuga­semd við slíka frá­sögn og hún sögð afbökun á raun­veru­leik­anum. 

Reynt að fela óþægilegar staðreyndir

„Okkur finnst þetta fyrst og fremst óheið­ar­legt. Við höfum óskað eftir sann­leik­anum í marga mán­uði og þegar hann loks lítur dags­ins ljós og varpar í leið­inni ljósi á spill­ing­una í íslensku stjórn­kerfi þá er leitað til erlends almanna­tengsla­fyr­ir­tækis til þess að hylma yfir þá hluti sem við höfum barist fyrir að fá upp á yfir­borðið,“ segir Anna Katrín Snorra­dóttir í sam­tali við Stundina. „Við veltum því fyrir okkur hvað það kostar íslenskt sam­fé­lag að fá þessa aðstoð frá erlendu almanna­tengsla­fyr­ir­tæki og hvort Íslend­ingar séu almennt sáttir við það að skatt­pen­ingar þeirra fari í að borga fyrir þetta.“

„Fyrst og fremst óheið­ar­legt“Anna Katrín Snorra­dóttir furðar sig á því að skatt­pen­ingum sé varið í að fegra það sem gerð­ist.
Segir Bjarna stað­festa við­horfinGlódís Tara segir Sjálf­stæð­is­flokk­inn neita að horfast í augu við óþægi­legar stað­reyndir um kyn­ferð­is­of­beldi og brota­þola þess.

Glódís Tara seg­ist hneyksluð á þeim svörum sem Bjarni Bene­dikts­son gaf í leið­togaum­ræðum á RÚV þann 8. októ­ber síð­ast­lið­inn þegar Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­kona Pírata, spurði hvort hann teldi rétt­læt­an­legt að verja almannafé í að bæta ímynd Sjálf­stæð­is­flokks­ins á erlendri grundu. „Bjarni svar­aði á þá leið að þessu fyr­ir­tæki hefði oft verið falið það að leið­rétta rang­færslur og verja orð­spor lands­ins. Svo sak­aði hann Pírata um að „níða rík­is­stjórn­ina“ og „koma óorði á Ísland“ og sagði sjálf­sagt að fá aðstoð almanna­tengla við að leið­rétta það,“ segir Glódís og bætir við: „Þarna stað­festi Bjarni einmitt þau við­horf sem við höfum upp­lifað frá hans flokki, það hvernig þau neita að horfast í augu við óþægi­legar stað­reyndir um kyn­ferð­is­of­beldi og okkur brota­þol­ana.“

Halla Ólöf tekur undir þetta. „Við erum stoltar af Þórhildi Sunnu fyrir að spyrja ítrekað „óþægi­legra“ spurn­inga fyrir hönd brota­þola kyn­ferð­is­of­beldis á Íslandi. Hún stendur þétt við bakið á okkur og manni mis­býður hve miklu virð­ing­ar­leysi hún hefur mætt frá þing­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Þeir ættu miklu frekar að taka sér hana til fyr­ir­myndar, eða að minnsta kosti þakka henni fyrir að „þora“ að hitta okkur, hlusta á okkur og spyrja óþægi­legra spurn­inga,“ segir hún. 

Þakklát fyrir stuðn­ing­innHalla Ólöf Jóns­dóttir hvetur sjálf­stæð­is­menn til að taka sér Þórhildi Sunnu, þing­konu Pírata, til fyr­ir­myndar.

Enn ein tilraunin til þöggunar

Anna, Glódís, Halla og Nína líta á aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar gagn­vart erlendum fjöl­miðlum sem fram­hald af þögg­un­inni sem þær upp­lifðu í sumar þegar þær ósk­uðu árang­urs­laust eftir svörum um upp­reist æru Roberts Downey og með­ferð máls­ins í dóms­mála­ráðu­neyt­inu. 

„Það að krefja Washington Post um að fjar­lægja pistil þar sem fjallað er um #höf­um­hátt og mót­mæli okkar er auð­vitað bara enn ein til­raunin til þögg­unar. Þarna er verið að reyna að kæfa okkar raddir og alla þá bar­áttu sem við höfum háð und­an­farna mán­uði. Þetta er líka í anda þeirrar miklu van­virð­ingar sem við höfum upp­lifað frá full­trúum Sjálf­stæð­is­flokks­ins allt frá því að bar­áttan hófst,“ segir Nína Rún. 

„Enn ein til­raunin til þögg­unar“Nína Rún Bergs­dóttir segir stjórn­völd reyna að þurrka út bar­átt­una sem var háð undir myllu­merk­inu #höf­um­hátt.

„Þetta er alltaf sama sagan. Enn einu sinni er farið á bak við okkur og við ekki virtar við­lits, þau hlusta ekki, svara ekki þegar við leitum til þeirra með spurn­ingar. En samt nýta þau sér okkur brota­þola í póli­tískum til­gangi með yfir­lýs­ingum á borð við að „samúð Sjálf­stæð­is­manna hafi alltaf verið hjá brota­þolum“, að flokk­ur­inn „standi með brota­þolum og aðstand­endum þeirra“. Hvernig geta þau leyft sér að tala svona um okkur opin­ber­lega þegar þau þora ekki, geta ekki eða vilja ekki tala við okkur í eigin per­sónu?“

„Hvar er heiðarleikinn og hugrekkið?“

Anna Katrín furðar sig á bréf­inu sem rík­is­stjórn Íslands lét senda Washington Post. „Hvern er verið að vernda með þessu bréfi? Barn­a­níð­inga og póli­tíkusa? Það er alveg ljóst að þetta bréf er ein­göngu skrifað til að verja orð­spor Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ekki ann­arra,“ segir hún.

„Hvenær ætlar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn að taka ábyrgð á orðum og gjörðum sínum og þing­manna sinna? Við bíðum enn eftir því að ein­hver úr þeirra röðum hlusti á okkur brota­þola og gefi sér tíma til að svara okkur. Þöggunin á sér svo margar birt­ing­ar­myndir. Við hörmum t.d. að skyn­söm kona eins og Hildur Sverr­is­dóttir verji opin­ber­lega nið­ur­lægj­andi ummæli Brynjars Níels­sonar um okkur brota­þola í færslu á Facebook-síðu sinni, telji hann ekki hafa sýnt neina van­virð­ingu og hunsi síðan spurn­ingu okkar undir sömu færslu. Hvar er heið­ar­leik­inn og hug­rekkið? Hvar er sjálf­stæða hugs­unin? Hvenær er fram­gangan orðin nógu gróf til þess að eitt­hvert þeirra finni sig knúið til að standa upp og segja hingað og ekki lengra? Hvenær brotnar með­virknin og sam­trygg­ingin, hvað þarf til?“

„Hvenær er fram­gangan orðin nógu gróf til
þess að eitt­hvert þeirra finni sig knúið til að standa upp og segja hingað og ekki lengra?“

Glódís tekur í sama streng og segir til­raunir til að þagga niður umræðu í erlendum miðlum um stjórn­ar­slitin á Íslandi og tengsl atburð­anna við upp­reist æru barn­a­níð­inga fela í sér að verið sé að breiða yfir mis­tök sem eng­inn vill né þori að taka ábyrgð á.

„Því er haldið fram að þetta sé allt til þess að vernda orð­spor Íslands, eins og það sé í þágu allra Íslend­inga að ekki sé sagt satt og rétt frá því sem gerð­ist. Við leyfum okkur hins vegar að trúa því að meiri­hluti Íslend­inga sé laus við þá með­virkni að aldrei megi tala illa um neitt sem kemur fyrir á Íslandi, að fólk hafi almennt meiri rétt­læt­is­kennd en svo,“ segir hún. 

Þær Halla Ólöf Jóns­dóttir, Anna Katrín Snorra­dóttir og Glódís Tara tóku þátt í druslu­göng­unni í sumar þegar umfjöllun um mál Roberts Downey stóð sem hæst.

Fannst hlægilegt að hlusta á forsætisráðherra

Píratar beittu sér fyrir því á síð­ustu dögum þings­ins í sept­em­ber að sett yrðu lög gegn því að menn sem dæmdir hafa verið fyrir kyn­ferð­is­glæpi, barn­a­níð og fleiri sví­virði­leg brot geti öðl­ast lög­manns­rétt­indi. Ekki náð­ist sam­staða innan alls­herjar- og mennta­mála­nefndar um að slíkt frum­varp yrði tekið fyrir en málið mætti and­stöðu frá þing­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks­ins. 

„Við hrein­lega skiljum ekki hvers vegna Alþingi gat ekki séð sóma sinn í að lög­festa þetta fyrir þing­lok,“ segir Halla Ólöf. „Það var hlægi­legt að hlusta á Bjarna Bene­dikts­son fara með ræðu á opnum kosn­inga­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins þann 23. sept­em­ber, nokkrum dögum fyrir þing­lok og ítreka að hann og flokk­ur­inn hans stæðu með brota­þolum og aðstand­endum þeirra, en horfa upp á það nokkrum dögum seinna að þau vildu ekki lög­festa bann við því að kyn­ferð­is­brota­menn gegni lög­manns­störfum. Við höfum spurt Bjarna Bene­dikts­son um þetta og enn ekki fengið nein svör. Reyndar hefur eng­inn úr flokknum haft sam­band við okkur brota­þol­ana síðan umræða um þessi mál hófst í sumar.“

Furða sig á afnámi ákvæða um uppreist æru

Aðspurðar hvort þeim finn­ist Alþingi hafa svarað kalli þolenda með þeim laga­breyt­ingum sem gerðar voru á síð­ustu dögum þings­ins, þegar ákvæði um upp­reist æru voru alfarið afnumin úr hegn­ing­ar­lögum, segir Nína Rún: „Nei, það finnst okkur ekki. Það var ekki okkar ósk að ákvæði um upp­reist æru yrðu algjör­lega tekin út úr almennum hegn­ing­ar­lögum. Það eru ekki öll mál eins. Í raun hræðir þetta okkur, og sér­stak­lega það að brott­fall ákvæð­is­ins gildir bara til 1. jan­úar 2019. Ef ekki tekst að setja ný lög fyrir þann tíma falla þau gömlu aftur í gildi og þá gætu enn fleiri barn­a­níð­ingar fengið upp­reist æru.“

Hættulegt að utanríkisráðherra gefi rangar upplýsingar

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra fund­aði með sendi­herrum þann 29. sept­em­ber og sagði í við­tali við RÚV að hann og starfs­menn ráðu­neyta og sendi­ráða hefðu þurft að  „leið­rétta allra­handa mis­skiln­ing úti um allt alnetið og úti um allan heim“.

Fundaði með sendi­herrumGuð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra sagð­ist hafa þurft að útskýra „að það væri ekki þannig að barn­a­níð­ingar sem fengju upp­reist æru gætu í fram­hald­inu unnið með börnum“.

Fram kom í máli Guðlaugs á fund­inum að það hefði „þurft að útskýra að það væri ekki þannig að barn­a­níð­ingar sem fengju upp­reist æru gætu í fram­hald­inu unnið með börnum“. Eins og hefur þó verið marg­bent á geta barn­a­níð­ingar sem fá upp­reist æru upp­fyllt skil­yrði til að öðl­ast lög­manns­rétt­indi og þar með fengið aðgang að vitna­leiðslum og skýrslu­tökum af börnum í Barna­húsi. 

„Þessi ummæli Guðlaugs Þórs eru ekki bara dæmi um hvernig stjórn­völd leyfa sér að fegra mál­efnið á falskan hátt, heldur líka það hvernig þau gera lítið úr bar­átt­unni okkar. Það er nefni­lega alls ekki raunin að barn­a­níð­ingar geti ekki unnið með börnum eftir að hafa fengið upp­reist æru. Okkur þykir bæði stórfurðu­legt og hættu­legt að gefa út svona yfir­lýs­ingar sem eru bein­línis rangar,“ segir Nína Rún í sam­tali við Stundina. „Eins og við höfum marg­bent á og barist fyrir með ómet­an­legri hjálp Þór­hildar Sunnu, þing­konu Pírata, þá getur Robert Downey hæg­lega tekið upp lög­manns­skír­teinið sitt og farið að starfa sem lög­maður aftur þar sem hann hefur mögu­leika á því að nálg­ast börn og ung­linga í við­kvæmri stöðu í Barna­húsi. Nú er í raun ekk­ert sem stöðvar hann.“

Anna, Glódís og Halla taka undir þetta. „Það var Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sem setti sig á móti frum­varpi Þór­hildar Sunnu, líkt og það séu ein­hver mann­rétt­indi að Robert Downey fái lög­manns­rétt­indin sín aftur og að barn­a­níð­ing­ur­inn Hjalti Sigurjón Hauksson fái að keyra skóla­bíla með varn­ar­lausum fimm og sex ára börnum. Þau vildu ekk­ert vinna áfram með frum­varpið þó það séu til for­dæmi fyrir sams konar laga­breyt­ingum í Evrópu,“ segir Anna. „Við skiljum ekki af hverju þau settu sig upp á móti frum­varp­inu. Við óskuðum eftir rök­stuðn­ingi frá Bjarna Bene­dikts­syni fyrir tveimur vikum en höfum engin svör fengið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár