Segir loforðin til marks um örvæntingu og Sjálfstæðisflokkinn „fara fram úr sér í kosningabaráttu“

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, segir óábyrgt að nota 100 millj­arða arð­greiðslur vegna lækk­unar eig­in­fjár við­skipta­bank­anna til stór­felldrar útgjalda­aukn­ingar sam­hliða skatta­lækk­unum.

Segir loforðin til marks um örvæntingu og Sjálfstæðisflokkinn „fara fram úr sér í kosningabaráttu“

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, segir óábyrgt að nota 100 millj­arða arð­greiðslur vegna lækk­unar eig­in­fjár við­skipta­bank­anna til stór­felldrar útgjalda­aukn­ingar sam­hliða skatta­lækk­unum. 

„Það gengur ekki að menn fyllist örvænt­ingu og fari fram úr sér í kosn­inga­bar­átt­unni með þessum hætti, og það gildir jafnt til hægri og vinstri. Við verðum að fara var­lega nú þegar við erum á toppi hag­sveifl­unnar,“ segir hún.

„Ein­skiptis­tekjur á borð við óreglu­legar arð­greiðslur úr bönk­unum ættu auð­vitað að fara í nið­ur­greiðslu skulda, til að lækka vaxta­kostnað hins opin­bera og skapa svig­rúm í rík­is­fjár­málum svo hægt sé að byggja upp til langs tíma.“ 

Eins og Stundin fjall­aði um í gær vill Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn „bæta 100 millj­örðum við í inn­viða­upp­bygg­ingu“ á næstu árum umfram það sem gert er ráð fyrir í fjár­mála­á­ætlun frá­far­andi rík­is­stjórnar.

Um leið vill flokk­ur­inn lækka skatta, m.a. trygg­ing­ar­gjald og tekju­skatt, og stór­auka fram­lög til vel­ferð­ar­mála. 

Hagdeild ASÍ telur að lof­orðin stang­ist á við sjálf­bærni­mark­mið laga um opin­ber fjár­mál og hag­fræð­ingar sem Stundin hefur rætt við telja óæski­legt að verja ein­skiptis­tekjum til auk­inna rík­is­út­gjalda sam­hliða skatta­lækk­unum. Slíkt geti kynt undir verð­bólgu og háu vaxta­stigi.

Þor­gerður Katrín tekur undir þessa gagn­rýni. „Auðvitað eiga ein­skiptis­tekjur fyrst og fremst að vera nýttar til nið­ur­greiðslu skulda hins opin­bera. Annað er óábyrgt og ég hélt satt að segja að flestir væru sam­mála um þetta, að minnsta kosti frá­far­andi stjórn­ar­flokkar.“ 

Hún bendir á að Viðreisn tali fyrir hóf­legri lækkun trygg­ing­ar­gjalds og vilji halda áfram kraft­mik­illi upp­bygg­ingu inn­viða. Hins vegar verði alltaf að hugsa til þess hvernig hlut­irnir eru fjár­magn­aðir.

„Það gengur ekki að stökkva til í kosn­inga­bar­áttu og fara að lofa bæði stór­kost­legum skatta­lækk­unum og gríð­ar­legri útgjalda­aukn­ingu, tug­millj­arða breyt­ingum á fjár­mála­á­ætlun,“ segir hún. 

Í gær kynnti Viðreisn kosn­inga­á­herslur sínar og útskýrði hvernig staðið yrði undir kostn­aði við aukin útgjöld á næsta kjör­tíma­bili. Áður höfðu Píratar boðað til blaða­manna­fundar og kynnt hvernig þeir sjá fyrir sér fjár­lög næsta árs. „Það er mik­il­vægt að flokk­arnir útskýri og útfæri hvernig staðið verði undir kosn­inga­lof­orð­unum,“ segir Þor­gerður og skorar á aðra flokka að gera slíkt hið sama.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár