Viðreisn vildi 4 prósent kvótans á uppboð árlega og samninga til 25 ára

Hanna Katrín Frið­riks­son, full­trúi Við­reisnar í nefnd um gjald­töku í sjáv­ar­út­vegi, lagði til að veiði­gjöld yrðu aflögð og í stað­inn yrðu lausir samn­ingar seldir á mark­aði og gerðir á einka­rétt­ar­legum grunni.

Viðreisn vildi 4 prósent kvótans á uppboð árlega og samninga til 25 ára

Hanna Katrín Frið­riks­son, full­trúi Við­reisnar í nefnd um gjald­töku í sjáv­ar­út­vegi sem nú er hætt störfum, lagði fram til­lögu um að gerðir yrðu 25 ára nýt­ing­ar­samn­ingar við útgerðir með árlegu upp­boði 4 pró­senta afla­hlut­deilda og að um leið yrðu veiði­gjöld afnumin.

Þetta kemur fram í grein­ar­gerð Þor­steins Páls­sonar, for­manns nefnd­ar­innar, sem seg­ist hafa slitið störfum nefnd­ar­innar vegna and­stöðu Sjálf­stæð­is­flokks­ins við breyt­ingar á núver­andi fyr­ir­komu­lagi fisk­veiða og gjald­töku í sjáv­ar­út­vegi. 

Grein­ar­gerð­ina er að finna á vef stjórn­ar­ráðs­ins og birtir hann þar vinnu­gögn nefnd­ar­innar, meðal ann­ars til­lögu Við­reisnar um fram­kvæmd gjald­töku af sjáv­ar­út­vegsauð­lind­inni. 

Í minn­is­blaði Hönnu Katrínar, þar sem gjald­töku­hug­mynd­irnar eru settar fram, er lagt til að gerðir verði „nýt­ing­ar­samn­ingar í sam­ræmi við álit sátta­nefndar undir for­ystu Guð­bjarts Hann­es­sonar frá 2010 og drög að frum­varpi Sigurðar Inga Jóhanns­sonar frá 2014 og með til­vísun í hug­myndir Jóns Gunn­ars­sonar frá 2016“. 

Minn­is­blaðið

Yrðu samn­ing­arnir einka­rétt­ar­legs eðlis og sam­hliða þeim yrðu veiði­gjöld aflögð. „Núver­andi gjald­töku verði hætt, en í stað þess verði lausir samn­ingar seldir á mark­aði. Öll íslensk fiski­skip með leyfi til veiða geti keypt afla­hlut­deild á mark­aði, í sam­ræmi við gild­andi reglur,“ segir í skjal­inu. „Reglur um rétt til kaupa og sölu á afla­marki og afla­hlut­deild, sem og um hámarks­eign ein­stakra aðila, verði óbreyttar frá núver­andi fyr­ir­komu­lagi.“

Með umræddu fyr­ir­komu­lagi yrði nýt­ing­ar­samn­ingum í upp­hafi úthlutað til núver­andi eig­enda afla­hlut­deildar þannig að 4 pró­sent samn­inga yrði laus á hverju ári. Samið yrði til 25 ára og myndi hluti tekna af sölu afla­hlut­deilda renna í sjóð sem hefði það verk­efni að efla byggð utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár