Úkraína fékk enga viðvörun frá bandamönnum um yfirvofandi árásir Rússa með skotflaugum á orkumannvirki í Kænugarðshéraði, sagði Volodimír Selenskí forseti í dag.
Rússar skutu 16 skotflaugum á Kænugarðshérað og sendu meira en 200 dróna víðs vegar um stríðshrjáð landið, sagði Selenskí. Fréttamenn AFP heyrðu loftvarnarflautur og sprengingar í höfuðborginni.
„Rússar gerðu aðra árás með skotflaugum í nokkrum lotum í nótt og enn og aftur fengum við enga viðvörun frá samstarfsríkjum okkar,“ sagði Selenskí á samfélagsmiðlum.
Í síðustu viku sögðu úkraínsk stjórnvöld að Bandaríkin hefðu ekki varað þau við sambærilegum árásum. Íbúar hefðu því nánast engan tíma haft til að leita skjóls.
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, neitaði því fyrr í dag að nokkurt hlé hefði verið gert á miðlun leyniupplýsinga til Úkraínu.
„Það hefur ekkert hlé verið gert,“ sagði Rubio við fréttamenn í Úsbekistan þegar hann var spurður um fullyrðingar Úkraínumanna. Hann hvatti Zelensky …

























































Athugasemdir