Hjónadjöflar

Sigríður Jóns­dóttir skrifar um Djöflar eftir Lars Norén, sem sýnt er í Borg­ar­leik­hús­inu.

Hjónadjöflar
Á enda­stöð Vala Kristín Eiríks­dóttir og Hilmir Snær leika í Djöflum, þar sem hjónin Frank og Katarína heyja til­finn­inga­legt og and­legt stríð hvort við annað. Mynd: Hörður Sveinsson
Leikhús

Djöflar

Höfundur Lars Norén
Leikstjórn Stefán Jónsson
Leikarar Hilmir Snær Guðnason, Vala Kristín Eiríksdóttir, Íris Tanja Flygenring og Haraldur Ari Stefánsson

Leikmynd: Börkur Jónsson

Búningar: Helga I. Stefánsdóttir

Lýsing: Gunnar Hildimar Halldórsson

Hljóðmynd: Ísidór Jökull Bjarnason

Þýðing: Hlín Agnarsdóttir

Niðurstaða:

Kolsvört og krefjandi. Djöflar setur gæðastuðulinn fyrir komandi leikár.

Gefðu umsögn

Hvenær er sam­bandi lokið? Hvenær er ástin ekki nóg? Er það þegar vondu dag­arnir eru fleiri en þeir slæmu? Eða þegar öll von er úti um að góðu dög­unum eigi eftir að fjölga í fram­tíð­inni? Um síð­ustu helgi var Djöflar eftir sænska höf­und­inn Lars Norén frum­sýnt í Borg­ar­leik­hús­inu. Svörin við ofan­greindum spurn­ingum eru kannski ekki að finna í sýn­ing­unni heldur krefur leik­skáldið áhorf­endur um að máta sig við óham­ingj­una.

Norén er þekktur fyrir myrka sýn sína á mann­leg sam­skipti og sam­bönd. Djöflar eru hans til­brigði við leik­verk á borð við Hver er hræddur við Virginíu Woolf? eftir Edward Albee og Elsk­hugan eftir Harold Pinter. Við erum stödd á heim­ili hjón­anna Frank og Katarínu sem eiga í til­finn­inga­legu og and­legu stríði við hvort annað. Móðir Franks er nýlátin en það er ekki orsök óham­ingj­unnar heldur frekar hvat­inn sem leiðir til loka­or­ust­unnar. Eftir að kvöld­plönin falla niður bjóða þau Jennu og Tómasi, …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár