Daði segir framúrkeyrslu ríkisins hafa minnkað

Guð­rún Haf­steins­dótt­ir gagn­rýndi rík­is­stjórn­ina fyr­ir að hafa brugð­ist of seint við halla­rekstri rík­is­sjóðs. Daði Már Kristó­fers­son fjár­mála­ráð­herra hafn­aði gagn­rýn­inni og sagði fram­kvæmd fjár­laga hafa batn­að á kjör­tíma­bil­inu.

Daði segir framúrkeyrslu ríkisins hafa minnkað
Hallalaus Daði hefur lagt fram hallalaus fjárlög en ljóst er að það þarf lítið sem ekkert að fara úrskeiðis eða breytast til að það klikki. Mynd: Golli

Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra segir framúrkeyrslu í ríkisrekstri hafa minnkað í tíð núverandi ríkisstjórnar og hafnar gagnrýni Guðrúnar Hafsteinsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um að ríkisstjórnin hafi látið hjá líða að beita nægilegu aðhaldi í ríkisfjármálum. 

Guðrún beindi óundirbúinni fyrirspurn til Daða á Alþingi í dag og gagnrýndi ríkisstjórnina fyrir að vísa ítrekað til útgjalda fyrri ríkisstjórnar þegar hallarekstur ríkissjóðs væri ræddur. Hún sagði núverandi ríkisstjórn sjálfa hafa aukið hallann og spurði hvers vegna ekki hefði verið gripið fyrr til aðhalds.

„Hvers vegna var ekki strax hafist handa við aðhald í ríkisfjármálunum þannig að verðbólgan gæti haldið áfram að þokast nær markmiði og vextir haldið áfram að lækka?“ spurði Guðrún.

Hún sagði upphaflega hafa verið stefnt að mun minni halla á þessu ári en nú blasir við. „Hvers vegna lætur ríkisstjórnin hjá líða í tvö ár að skila sínu en klappar sér svo á …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjárlög 2027

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
4
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár