Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði í kvöld að hann hefði gert „ótímabundinn“ samning við Danmörku sem veitir Bandaríkjunum yfirráð yfir öryggismálum Grænlands og kemur í veg fyrir að erlendir andstæðingar komi sér þar upp bækistöðvum.
„Það er mér ánægja að tilkynna að Bandaríki Norður-Ameríku hafa gert samning við konungsríkið Danmörku og Grænland sem Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði á föstudag að hann hefði gert „ótímabundinn“ samning við Danmörku sem veitir Bandaríkjunum yfirráð yfir öryggismálum Grænlands og kemur í veg fyrir að erlendir andstæðingar komi sér þar upp bækistöðvum.
„Það er mér ánægja að tilkynna að Bandaríki Norður-Ameríku hafa gert samning við konungsríkið Danmörku og Grænland sem veitir Bandaríkjunum varanleg yfirráð yfir öryggismálum og öllum öðrum þörfum á Grænlandi,“ sagði Trump á samfélagsmiðlinum Truth Social.
„Héðan í frá getur enginn andstæðingur Bandaríkjanna NOKKURN TÍMA komið sér upp bækistöð á Grænlandi, haft hernaðarlega viðveru á Grænlandi eða gert viðkvæmar fjárfestingar á Grænlandi án okkar skýlausa skriflega samþykkis.“
Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur fagnaði samningnum.
„Ég er ánægð með að það séu horfur á góðum samningi fyrir Grænland, danska ríkið og Bandaríkin. Samningur sem styrkir sameiginlegt öryggi okkar á norðurslóðum og Norður-Atlantshafi og er þar með einnig góður fyrir NATO og Evrópu. Og samningur sem viðurkennir um leið fullveldi og landhelgi danska ríkisins og sjálfsákvörðunarrétt grænlensku þjóðarinnar.“
Formaður grænlensku ríkisstjórnarinnar, Naalakkersuisut, Jens-Frederik Nielsen, segir í fréttatilkynningunni að samningurinn muni tryggja og styrkja öryggi Grænlands, danska ríkisins, Bandaríkjanna og vestræna bandalagsins.
„Samningurinn viðurkennir hagsmuni Grænlands og stöðu okkar í alþjóðlegu samstarfi. Það er okkur öllum til hagsbóta,“ segir hann.
Öryggissamningurinn tryggir að Kína og Rússland geti ekki komið sér upp herstöðvum þar, sagði utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna í dag.
„Samningurinn tryggir Bandaríkjunum beinlínis fulla heimild til að gera það sem þau telja nauðsynlegt á Grænlandi til að tryggja og verja amerísku heimsálfuna, þar á meðal varanlegan aðgang, herstöðvar og yfirflugsrétt,“ sagði embættismaður utanríkisráðuneytisins sem vildi ekki láta nafns síns getið.
„Þessi samningur tryggir að Kína og Rússland geta ekki haft herstöð á Grænlandi, þau geta ekki sent herlið til Grænlands og nauðsynlegir ferlar eru til staðar til að koma í veg fyrir fjárfestingu í viðkvæmum geirum.“

























































Ég hnaut um tilvísanir í viðbrögð Trums á borð við,
"..Veitir Bandaríkjunum varanleg yfirráð yfir..........öllum öðrum þörfum á Grænlandi" og "..nauðsynlegir ferlar eru til staðar til að koma í veg fyrir fjárfestingu í viðkvæmum geirum."
-sem urðu til þess að ég rifjaði upp skoðanagrein frá því í janúar á þessu ári (sjá neðar), þar sem bent er á að Trump / Trump-stjórnin sjái sér mikinn hag í því að „eignast“ Grænland, ekki hvað síst til þess að ná yfirráðum yfir tilvonandi framleiðslu og nýtingu sjaldgæfra jarðmálma, sem þar er að finna, og sem nýtanlegir eru til margra hluta, þ.m.t. í hertækni.
Þegar maður ber saman yfirlýsingar Danskra og Grænlenskra stjórnvalda annars vegar, sem leggja megináherslu á þátt varnarfyrirkomulags og fullveldis Grænlands í samningnum og hins vegar yfirlýsingar Trumps á borð við þær sem vitnað er í hér ofar vaknar spurning hvort skilningur samningsaðila á megininntaki samningsins sé gjörólíkur(?!)
Skoðanagrein á visi.is 9.1.2026:
https://www.visir.is/g/20262826842d/ahhh-thess-vegna-vill-trump-eignast-graenland-
Semsagt það sama og hefur gilt frá 1951. Það er ekki nýr samningur heldur endurnýjun samnings.