Seðlabankinn breytir ekki stýrivöxtum. Verðbólga hefur farið hækkandi en ekki lækkandi. Peningastefnunefnd segir að tekið sé að hægja á efnahagsumsvifum en mæld og undirliggjandi verðbólga sé enn of mikil og verðbólguvæntingar of háar.
Engin breytingÁsgeir Jónsson er formaður peningastefnunefndar Seðlabankans, sem ákvað að breyta ekki vöxtum.Mynd: Golli
Seðlabankinn hækkar hvorki né lækkar stýrivexti, sem ákvarða vaxtastig í landinu, og haldast þeir í átta prósentum. Peningastefnunefnd bankans tilkynnti þetta í morgun. Verðbólga mælist enn of há sem og verðbólguvæntingar, jafnvel þó farið sé að hægja á efnahagsumsvifum.
Verðbólga mælist nú 5,9 prósent og hefur ekki verið meiri í tvö ár. Hún hefur aukist enn frekar frá því í sumar, líkt og nefndin hafði búist við.
Nefndin rekur aukninguna fyrst og fremst til áhrifa stríðsátaka í Mið-Austurlöndum og hækkunar opinberra gjalda. Undirliggjandi verðbólga hefur hins …
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Athugasemdir