Margaret Hamilton látin

Frum­kvöð­ull­inn Margaret Hamilton stýrði þróun tölvu­kerf­is­ins sem notað var í tungl­áætlun NASA. Hún var fyrsti for­rit­ar­inn sem ráð­inn var til Apollo-verk­efn­is­ins við MIT og hlaut frels­is­orðu Banda­ríkja­for­seta árið 2016 fyrir störf sín.

Margaret Hamilton látin
Heiðruð Barack Obama, fyrr­ver­andi Banda­ríkja­for­seti, sæmdi Hamilton frels­is­orðu Banda­ríkja­for­seta árið 2016 fyrir afrek hennar. Mynd: SAUL LOEB / AFP

Banda­ríska vís­inda­konan Margaret Hamilton, sem stýrði þróun tölvu­kerf­is­ins sem notað var í Apollo-tungl­áætlun NASA, er látin, níræð að aldri. Fyrr­ver­andi vinnu­veit­andi hennar greindi frá and­lát­inu í gær.

Í til­kynn­ingu frá tækni­há­skól­anum MIT í Massachusetts var Hamilton lýst sem „frum­kvöðli í tölvu­tækni“. Þar kenndi hún frá 1959 fram á miðjan átt­unda ára­tug­inn. Hún lést 30. sept­em­ber.

„Að segja að Margaret Hamilton hafi verið frum­kvöð­ull – að segja að hún hafi verið á undan sinni sam­tíð – væri að gera stór­lega lítið úr fram­lagi hennar,“ sagði Olivier de Weck, pró­fessor í fræða­stöðu kenndri við Apollo-áætl­un­ina og starf­andi deild­ar­for­seti flug- og geim­verk­fræði­deildar MIT.

„Hún var hug­bún­að­ar­verk­fræð­ingur þegar greinin var enn á bernsku­skeiði. Hún skrif­aði ekki aðeins sjálf háþró­aðan for­rit­skóða heldur stýrði líka teymi sem nýtti þessa nýju tækni til að þróa eitt flókn­asta kerfi sem mann­kynið hafði nokkru sinni búið til,“ bætti de Weck við.

Apollo-áætl­unin gerði Banda­ríkj­unum …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu