Fyrrverandi yfirmaður þýsku leyniþjónustunnar dúsir í gæsluvarðhaldi

August Hanning er grun­aður um að hafa aflað leyni­legra gagna úr leyni­þjón­ust­unni fyrir ráð­gjaf­ar­störf sín og hugs­an­lega komið hluta þeirra til erlendra njó­sn­ara. Fyrr­ver­andi sam­starfs­maður hans er grun­aður um að hafa selt honum um 2.000 leyniskjöl.

Fyrrverandi yfirmaður þýsku leyniþjónustunnar dúsir í gæsluvarðhaldi
Hand­tek­inn Hanning, sem er fyrr­ver­andi yfir­maður þýsku leyni­þjón­ust­unnar, er grun­aður um að hafa komið trún­að­ar­upp­lýs­ingum og -gögnum til erlendra njó­sn­ara. Mynd: ABDELHAK SENNA / AFP

Dómstóll úrskurð­aði í dag að August Hanning, fyrr­ver­andi yfir­maður þýsku leyni­þjón­ust­unnar, skyldi áfram vera í gæslu­varð­haldi eftir að hann var hand­tek­inn vegna gruns um njósnir og land­ráð. Fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður hans var einnig hand­tek­inn, grun­aður um að hafa útvegað honum leyniskjöl.

Að sögn sak­sókn­ara afl­aði Hanning, sem er átt­ræður og stýrði BND, leyni­þjón­ustu Þýska­lands á sviði erlendra mál­efna, frá 1998 til 2005, sér ólög­lega leyni­legra upp­lýs­inga frá stofn­un­inni eftir að hann hóf ráð­gjaf­ar­störf á einka­mark­aði. Hann kann að hafa komið hluta upp­lýs­ing­anna til erlendra njó­sn­ara.

Fyrr­ver­andi skrif­stofu­stjóri Hannings, sem sak­sókn­arar hafa aðeins nafn­greint sem Manfred D., var einnig úrskurð­aður í áfram­hald­andi gæslu­varð­hald meðan rann­sókn stendur yfir.

Manfred D. starf­aði áfram hjá stofn­un­inni fyrir eft­ir­menn Hannings til mars 2026. Hann er grun­aður um að hafa selt fyrr­ver­andi yfir­manni sínum um 2.000 leyniskjöl sem Hanning not­aði við ráð­gjaf­ar­störf sín.

Leon Kruse, lög­maður Hannings, sagði við AFP að skjól­stæð­ingur …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu