Kjarasamningar halda: Vaxtabótaauki meðal höfuðlausna

Vaxta­bóta­auki sem Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra lagði til skipti sköpum við að leysa úr hnútnum á milli VR og Samtaka atvinnu­lífs­ins.

Halla Gunnarsdóttir
Halla Gunn­ars­dóttir Formaður VR er sátt og segir vaxta­bóta­auki skipta meg­in­máli. Mynd: VR

Kjara­samn­ingar milli Samtaka atvinnu­lífs­ins og VR halda. Þetta var til­kynnt eina mín­útu yfir fjögur, eða mín­útu eftir að frestur til þess að rifta samn­ingum rann út.

Á vef RÚV er haft eftir Bjarna Bene­dikts­syni að sam­komu­lag hefði tek­ist um til­tekin grund­vall­ar­at­riði en þau hafa ekki verið kunn­gjörð þegar þetta er skrifað.

Mikið hefur gengið á í samn­inga­við­ræð­unum en vitað er að eitt af því sem rætt var um var tíma­bund­inn vaxta­bóta­auki. Var það rætt á fundi for­sæt­is­ráð­herra.

Varaði við forsendubresti í ágúst

Halla Gunn­ars­dóttir for­maður VR til­kynnti um mið­bik ágústs að allt stefndi í að for­sendur kjara­samn­ing­anna væru brostnar í ljósi þess að verð­bólgu­mark­mið héldu ekki.

Halla vakti athygli á þessu ásamt fleiri stétt­ar­fé­lögum í aðsendri grein og árétt­aði að þessu yrði ekki haldið áfram nema atvinnu­lífið kæmi til móts við laun­þega með ein­hverjum hætti.

Í við­tali við Heim­ild­ina 10. ágúst síð­ast­lið­inn …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Ef vextir væru einfaldlega lækkaðir þyrfti ekki að niðurgreiða þá á kostnað skattgreiðenda!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjarasamningar 2024

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár