Ríkisstjórnin hefur lagt fram frumvarp um hömlur á hækkun leigu sem markar tímamót í íslenska verðbólguumhverfinu. Frumvarpið er samið í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu undir forystu Ragnars Þórs Ingólfssonar.
Frumvarpið er til þess fallið að hægja mjög á hækkunum á leigu, bæði fyrir íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði. Eftirfarandi eru mikilvægustu nýmælin:
- Mánaðarlegar hækkanir eru bannaðar. Minnst 12 mánuðir þurfa að líða milli hækkana, sem þurfa að vera samningsbundnar en ekki háðar geðþótta leigusala.
- Árlegar hækkanir mega ekki verða meiri en hækkun verðlagsvísitölunnar, en leiga íbúðarhúsnæðis hefur hækkað mjög langt umfram almennt verðlag hér á landi á síðustu 10–15 árum. Þannig eru settar hömlur á einn af stærstu drifkröftum verðbólgunnar.
- Sett eru viðmið um svigrúm til hækkana á leigu við upphaf og endurnýjun leigusamninga og tekið fyrir margþættar verðhækkanir á sama tíma.
- Birtar verða reglulega viðmiðunartölur um markaðsverð á leigu eftir gerðum húsnæðis og staðsetningu sem verða leiðbeinandi við samninga um leiguverð.
- Öryggi og neytendavernd leigjenda verða efld.
Með þessu frumvarpi eru reglur á íslenskum leigumarkaði færðar nær því sem tíðkast hefur í grannríkjunum, á hinum Norðurlöndunum og á meginlandi Evrópu. Það eru tímamót.
Í breytingunum felst gríðarleg kjarabót fyrir leigjendur og tekið er stórt skref í átt að því að hægja á verðbólgustiginu hér á landi.
Nú býr hátt í þriðjungur landsmanna í leiguhúsnæði, eftir að mjög hefur þrengt að möguleikum tekjulægri hópa til að eignast íbúðarhúsnæði. Vaxandi hluti þess hóps segist ekki sjá fram á að geta farið af leigumarkaði þó flestir óski sér þess, samkvæmt tölum HMS.
Hömlur á hækkunum leigu eru því gríðarlega stórt kjaramál fyrir þennan stóra hóp. Þetta er sá hópur sem býr við meiri erfiðleika en flestir aðrir við að ná endum saman. Þetta frumvarp er því stór kjarabót fyrir verkafólk almennt, en einnig fyrir lágtekjufólkið í VR og iðngreinum, ekki síst í byggingariðnaði.
Leigubremsan er einnig mikilvægt tól til að hægja á verðbólgunni og sem slík gagnast hún öllum.
Verkalýðshreyfingin öll hlýtur að fagna þessu mikilvæga skrefi stjórnvalda. Þetta frumvarp ætti að auka líkur á að kjarasamningar á almennum markaði haldi út samningstímann.
Höfundur er prófessor emeritus við HÍ og starfar hjá Eflingu


















































Það er þó raunin á núverandi leigumarkaði, þrátt fyrir allt tal um óhóflegar hækkanir á húsaeigu, að leiguverð þessarar íbúðar er í besta falli rétt um 60% af því sem það þarf að vera eða ca. 400.000.- á mánuði (4,8m / ári). Hvernig á þetta að ganga upp - hver á að greiða mismuninn samanborið við að leigandinn hefði einfaldlega keypt þessa íbúð sjálfur í stað þess að leiga - og þar með borið þennann kostnað sjálfur í stað þess að greiða leigu ?
Hvernig á bann við hækkun húsaleigu, þ.e. binding hækkunar við VNH á 12 mánaða fresti, leigubremsa, að leysa grundvallar vandann sem liggur í allt og háum fjármagnskostnaði, vaxtastigi, þar sem valið stendur á milli þess í sinni einföldustu mynd að leggja 80m inná sparnaðarreikning í banka og fá 7,5% (6m) í áhættulausar vaxtatekjur samanborið við að binda féð í íbúð til útleigu, sem skilar í besta falli 4,75% ávöxtum (3,8m / 80) með fjölþættri áhættu og umstangi sem einarhald og útlega íbúðarhúsnæðis felu í sér fyrir leigusala.
Frumvarp um leigubremsu mun ekki leysa þennan grundvallar vanda sem við er að etja - enda er hækkandi húsaleiga síðustu ár fyrst og fremst drifin áfram að framboðskorti, samkeppni um húsnæði við ferðamenn og mikla fólksfjölgun (innflutt vinnuafl) innfluttri verðbólgu og vaxtastigi sem er ekki í neinu samræmi við það sem þekkist í þessum löndum sem sífellt er vísað til.