Itamar Ben Gvir, þjóðaröryggisráðherra Ísraels og fulltrúi öfgahægrimanna, kynnti í gær áætlun um að flytja Palestínumenn burt af Gasasvæðinu og senda þá úr landi.
Í aðdraganda komandi kosninga í Ísrael sagði hann að áætlunin miðaði að því að 250.000 Palestínumenn færu frá Gasa á fyrsta árinu og síðan restin af þeim um tveimur milljónum íbúa á næstu sex árum.
„Þetta er raunhæft,“ sagði Ben Gvir og hélt því fram að sum lönd væru „tilbúin“ að taka við Gasabúum, án þess þó að nefna þau.
„Við verðum að hvetja til brottflutnings íbúa Gasa,“ sagði hann og bætti við að hann teldi að áætlunin fæli ekki í sér að neyða Palestínumenn til að yfirgefa land sitt.
Nauðungarflutningar almennra borgara á hernumdu svæði eru taldir stríðsglæpur samkvæmt Genfarsáttmálunum.
Fyrir Palestínumenn myndi hvers kyns tilraun til að neyða þá burt af landi sínu minna á „Nakba“ eða hörmungarnar – fjöldaflótta þeirra við stofnun …



















































Athugasemdir