Stóra-Ísrael og þjóðarmorðið

Ísrael er land án landamæra í stöðugri útþenslu með aðferðum sem alþjóða­stofn­anir kenna við þjóð­ar­morð.

Stóra-Ísrael og þjóðarmorðið
Kort án Palest­ínu Benjamín Net­anjahú, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, kynnti sýn sína fyrir Mið­aust­ur­lönd í alls­herj­ar­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna í New York 27. sept­em­ber 2024. Athygli vakti að á kort­inu yfir Mið­aust­ur­lönd náði Ísrael yfir land Palest­ínu­manna og her­tekin svæði innan Sýrlands. Mynd: AFP

Ungbarn er skotið í höndum móður, byggðum eytt í Líbanon og graf­reitir Palest­ínu­manna á Gasa­svæð­inu jafn­aðir við jörðu á meðan talað er um að liðka fyrir „sjálf­vilj­ugum brott­flutn­ingi“ þeirra og land­námi Ísra­els­manna. 

Svo vill til að atburð­irnir falla að hug­mynda­fræði, stefnu og draum­sýn sumra Ísra­els­manna, sem nú eru við völd, um hið svo­kall­aða Stóra-Ísrael, eða Greater Israel. Hugmynd var hluti af stofnun Ísra­els­ríkis, sem lýsti yfir sjálf­stæði án skil­greindra landamæra. 

Súper-Sparta í Miðausturlöndum

Núver­andi rík­is­stjórn Ísraels, undir for­sæti Benja­míns Net­anja­hús, sam­anstendur af fimm flokkum og er talin sú lengst til hægri sem mynduð hefur verið í land­inu. 

For­sæt­is­ráð­herr­ann sagð­ist í við­tali í ágúst í fyrra vera „mjög svo“ tengdur við hug­mynd­ina um „Stóra-Ísrael“. 

Nágranna­ríki Ísraels kröfðu Net­anjahú um skýr­ingu á því hvað hann meinti með orð­unum. Enda er óljóst til hvers er vísað með Stóra-Ísrael. Í sköp­un­ar­sögu Bibl­í­unnar er Guð sagður lofa Abraham og …

Kjósa
46
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Enn og aftur, trúarbrögð og peningar eru stórhættuleg. Mannkynið er núna sem og endranær að súpa seyðið af andlega biluðu fólki sem veit ekki sín takmörk.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

ViðtalÁrásir á Gaza

Samúð dugar ekki til and­spænis grimmd­inni

Dr. Younis Al-Khatib er for­seti Rauða hálf­mán­ans í Palest­ínu. Hann lýsir aðstæðum á vett­vangi um leið og hann kallar eftir því að alþjóða­sam­fé­lagið stígi inn. Mann­úð­ar­sam­tök geti ekki leyst póli­tísk átök og samúð dugi skammt þegar fólk þjá­ist. „Alþjóða­sam­fé­lagið þarf að skilja að nú er mælir­inn fullur; það verður að finna lausn og hún getur aðeins verið póli­tísk.“

9 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár