„Hefurðu glatað glórunni?“

Þátt­ar­stjórn­and­inn Piers Morg­an kom Ís­lend­ingn­um Samú­el Guð­munds­syni til varn­ar í rök­ræð­um við rabbín­an Shmuley Boteach.

„Hefurðu glatað glórunni?“
Fjölmargar ásakanir Piers Morgan tók harða afstöðu með Samúel Guðmundssyni, þrátt fyrir að gagnrýna hann fyrir dónaskap. Mynd: Skjáskot

Íslendingurinn Samúel Guðmundsson, sem vakti heimsathygli þegar hann blótaði Ísrael á myndbandi með bandaríska rabbínanum og fjölmiðlamanninum Shmuley Boteach á Akureyri í síðustu viku, kom fram í spjallþætti Piers Morgan í dag, sem sjá má hér fyrir neðan.

Í þættinum mættust þeir tveir í fyrsta skipti eftir að Samúel þóttist vera aðdáandi rabbínans, tók upp stutt myndband með honum og mótmælti þjóðarmorði Ísraels á Gaza, sem alþjóðastofnanir hafa sömuleiðis gert, en var í kjölfarið eltur af rabbínanum sem deildi lengra myndbandi af því fylgismönnum sínum.

Morgan benti á að Shmuley rabbíni hefði fengið „viðstöðulaust neikvæð viðbrögð“ undir myndbandi sem hann birti þar sem hann elti Samúel og kærustu hans eftir að Samúel blótaði Ísrael.

Piers Morgan tók í þættinum harða afstöðu gagnvart Shmuley rabbína en spurði einnig Samúel gagnrýninna spurninga.

„Þú segir að hann vilji að Gyðingar deyi. Hefurðu glatað glórunni?“ spurði Piers Morgan Shmuley.

„Hættu að ljúga. Hættu að ljúga,“ segir Piers Morgan á tímabili í þættinum við rabbínan. Þá gagnrýndi hann rabbínan harðlega fyrir að elta kærustu Samúels á myndbandi, þegar hún reyndi augljóslega að bægja sér undan.

Shmuley rabbíni hélt því fram í þættinum að 200 Palestínumenn hefðu fengið hæli á Íslandi. Samkvæmt tölum Þjóðskrár var 961 palestínskur borgari á Íslandi þann 1. ágúst síðastliðinn, en ekki hafa allir þeirra fengið hæli. Alls hafa 995 Palestínumenn sótt um hæli á Íslandi frá árinu 2019. Um helmingur þeirra hafa fengið hæli eða dvalarleyfi.

Þá hélt rabbíninn því fram að þeldökkum væri ekki hleypt til landsins og sakaði Íslendinga um hræsni fyrir að gagnrýna þjóðarmorð Ísraels, sem hann afneitar, en útilokaði annað fólk.

Morgan tók hljóðið af Shmuley rabbína á tímabili þar sem hann virti ekki stjórn hans á þættinum.

Þá sýndi Morgan brot úr myndböndum þar sem hann deilir við fólk víða um heim og kallar það Gyðingahatara.

Fyrst var greint frá atvikinu á Akureyri á vef Mannlífs í síðustu viku.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Lífið á Spáni fyrir og eftir Evrópusambandið
3
ViðtalHorft til Evrópu

Líf­ið á Spáni fyr­ir og eft­ir Evr­ópu­sam­band­ið

Fjór­um ár­um áð­ur en Spánn gekk í Evr­ópu­sam­band­ið flutti Hólm­fríð­ur Matth­ías­dótt­ir, út­gáfu­stjóri For­lags­ins, til Barcelona. Hún hef­ur upp­lif­að mikl­ar breyt­ing­ar þar og seg­ir Evr­ópu­sam­band­ið hafa dælt styrkj­um til Spán­ar og það til ým­issa mála, eins og til end­ur­bóta á sam­göng­um og land­bún­aði jafnt sem styrkj­um til menn­ing­ar­mála. Þá hafi katalónsk­an hlot­ið með­byr.

Mest lesið í mánuðinum

Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
2
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.
Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
6
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár