Samúð dugar ekki til andspænis grimmdinni

Dr. Younis Al-Khatib er for­seti Rauða hálf­mán­ans í Palest­ínu. Hann lýsir aðstæðum á vett­vangi um leið og hann kallar eftir því að alþjóða­sam­fé­lagið stígi inn. Mann­úð­ar­sam­tök geti ekki leyst póli­tísk átök og samúð dugi skammt þegar fólk þjá­ist. „Alþjóða­sam­fé­lagið þarf að skilja að nú er mælir­inn fullur; það verður að finna lausn og hún getur aðeins verið póli­tísk.“

Samúð dugar ekki til andspænis grimmdinni

Dr. Younis Al-Khatib, for­seti palest­ínska Rauða hálf­mán­ans (PRCS), segir að alþjóða­lög um aðgengi óbreyttra borg­ara að hreinu vatni og hús­næði hafi verið brotin auk þess sem aðstæður allar séu hörmu­legar.

Dr. Younis Al-Khatib telur að fólkið á Gasa gleym­ist. Aðeins póli­tískur vilji ráða­manna geti lagað ástandið sem hefur væg­ast sagt verið hörmu­legt. 

Byrjaði sem sjálfboðaliði

Dr. Younis Al-Khatib er mennt­aður í við­skipta-, lýð­heilsu- og stjórn­un­ar­fræðum og hefur verið for­seti palest­ínska Rauða hálf­mán­ans frá árinu 2000, en hefur starfað í þágu félags­ins frá árinu 1982 þegar hann gerð­ist sjálf­boða­liði. Hann hefur gegnt ýmsum ábyrgð­ar­stöðum innan félags­ins og verið í alþjóða­starfi hreyf­ing­ar­innar í ára­tugi.

Hann var staddur hér á landi í stuttri heim­sókn í boði Rauða kross­ins á Íslandi. Hann hélt fyr­ir­lestur í Þjóð­minja­safn­inu þar sem hann fjall­aði um stöðu mann­úð­ar­mála í Palest­ínu og þær áskor­anir sem þar eru.

Palest­ínski Rauði hálf­mán­inn sinnir víð­tæku lífs­nauð­syn­legu mann­úð­ar­starfi, rekur meðal ann­ars neyð­ar­línu, sjúkra­bíla, …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Árásir á Gaza

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár