Fá hjálp foreldra til að kaupa íbúð

Greiðslu­byrði og fast­eigna­verð eru sögu­lega há og lang­flestir kaupa fyrstu íbúð með aðstoð for­eldra sinna eða ann­arra ætt­ingja, sam­kvæmt könnun meðal fast­eigna­sala.

Fá hjálp foreldra til að kaupa íbúð
Fast­eignir Sögulega séð er mun dýr­ara að borga af hús­næði og kaupa það heldur en á fyrri árum. Mynd: Golli

Fast­eigna­salar svara því til í 80% til­fella að fyrstu kaup­endur fast­eigna fái aðstoð for­eldra sinna eða ann­arra ætt­ingja, sam­kvæmt vís­bend­ingum úr rann­sókn Húsnæðis-, mann­virkja- og skipu­lags­stofn­unar (HMS).

Tölurnar eru fengnar úr spurn­inga­könn­unum meðal fast­eigna­sala sem HMS hefur sent út frá því í júní í fyrra og birtir í nýrri mán­að­ar­skýrslu sinni í dag. Ein spurn­ing­anna er hvaða fjár­mögn­un­ar­leið fyrstu kaup­endur hafi farið í við­skiptum sem fast­eigna­sal­arnir hafa séð um. Á meðan 23% hafa tekið hlut­deild­ar­lán, sem er nýlegt úrræði stjórn­valda, hafa 79% fengið „aðstoð frá for­eldrum og ætt­ingjum“. Svipað hlut­fall, eða 80%, nota eigið fé. Þá segja 73% fast­eigna­sala að lána­stofnun hafi komið til með fjár­mögnun við fyrstu kaup í við­skiptum sem þeir hafa séð um.

Aðferða­fræði HMS er háð þeim ann­mörkum að um við­horfskönnun er að ræða í gegnum Félag fast­eigna­sala, sem telur 330 félags­menn, og svar­hlut­fallið var 21%. Því er ekki um beinar upp­lýs­ingar um fjár­mögnun …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Ekkitapaði ég sparnaði mínum hjá bankanum mínum þrátt fyrirbankahrunið á sínum tímaendaereg búin að vera fastur viðskiptavinur hjaþeim siðan1954 og alveg fram á þennan dag
    0
  • RE
    Regína Eiríksdóttir skrifaði
    Þess vegna segi ég já til að sjá 29. ágúst
    1
    • Steinþór Grímsson skrifaði
      Það er hreinlega ekki annað í boði!
      0
    • GÁ
      Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
      Hvers vegna? Til þess að undirgangast ríkisábyrgð á innstæðutryggingum að hætti Icesave sem við höfnuðum í bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2011? Þykir þér þú hafa heimild til að virða niðurstöðu þeirrar þjóðaratkvæðagreiðslu að vettugi?

      https://www.youtube.com/live/DjDT1dvgXn0?t=5297s
      https://www.youtube.com/watch?v=S-_phrsvbPs&t=359s
      https://icelandmonitor.mbl.is/opeds/opinion/2026/08/19/would_iceland_s_icesave_victory_remain_good_law_aft/
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fasteignamarkaðurinn

Skráði sig í sambúð með vini sínum til að standast greiðslumat
ViðtalFasteignamarkaðurinn

Skráði sig í sam­búð með vini sínum til að stand­ast greiðslu­mat

Hannes Árni Hann­es­son keypti sína fyrstu íbúð með vini sínum árið 2021. Hvorugur gat stað­ist greiðslu­mat einn og sér og gripu þeir því til þess ráðs að skrá sig í sam­búð. Vinunum gekk vel að búa saman þar til báðir eign­uð­ust kærustur. Mánuði eftir að þær fluttu inn seldi Hannes sinn hlut til vinar síns og þau fóru í íbúð­ar­leit að nýju.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár