Keyptu íbúð en geta ekki flutt inn vegna hárra afborgana

Páll Kristinn Stef­áns­son festi kaup á fyrstu íbúð í sumar ásamt kær­ustu sinni. Þau hafa búið hjá for­eldrum Páls und­an­farið á meðan þau hafa safnað pen­ing. Parið var spennt að flytja í eigið hús­næði en hafa ekki efni á því. „Það er ekk­ert smá svekk þegar maður er búinn að kaupa sér íbúð að hafa ekki tök á að búa í henni,“ segir hann.

Keyptu íbúð en geta ekki flutt inn vegna hárra afborgana
Í nýju íbúð­inni Páll Kristinn fékk fyrstu íbúð sína afhenta nýlega en hann og kærasta hans hafa búið hjá for­eldrum hans und­an­farið til að safna. Mynd: Víkingur

„Eftir rosa­legt bras þá hefur þetta loks­ins gengið hjá okkur,“ segir Páll Kristinn. Hann og Ronja, kærastan hans, voru að festa kaup á sinni fyrstu eign. Þau eru 24 ára og eru bæði búin að vera í fullu starfi síð­ustu tvö ár. Áður var Páll í námi í lög­fræði sem hann stund­aði í eitt ár og Ronja í for­námi í Mynd­lista­skól­anum. Und­an­farið hafa þau sinnt ýmsum störfum, meðal ann­ars í síma­veri, sinnt afgreiðslu­störfum og unnið í eld­húsi. Síð­ast­liðin ár hefur parið búið heima hjá for­eldrum Páls til þess að safna sér fyrir íbúð. 

„Við byrj­uðum fyrir tveimur árum að safna alveg rosa­lega,“ segir Páll, en síð­ast­liðna sex mán­uði hafa þau verið að skoða íbúðir af fullum krafti. Hann segir að þau hafi bæði verið búin að leggja fé til hliðar allt aftur til ung­lings­ár­anna. „Við höfðum safnað í fram­tíð­ar­sjóð í mörg, mörg ár,“ segir hann. 

Foreldrahús og fjárhagsleg …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    FEGIN ER EG AÐ ÞURFA EKKI AÐ STANDA Í SVONA VESENI ER LÍKA ÞAKKLAT FYRIR AÐ FÁ AÐ VERA ÞAR SEM EG ER NÚNA
    0
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    "Keyptu íbúð en geta ekki flutt inn vegna hárra afborgana" ???

    Þetta vekur upp spurningar sem er hvergi svarað í greininni:
    Þarf ekki að standast greiðslumat til að fá húsnæðislán?
    Er búseta í íbúðinni ekki skilyrði fyrir því að fá húsnæðislán?
    Hér virðist einhver fiskur liggja undir steini...
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fasteignamarkaðurinn

ViðtalFasteignamarkaðurinn

Skráði sig í sam­búð með vini sínum til að stand­ast greiðslu­mat

Hannes Árni Hann­es­son keypti sína fyrstu íbúð með vini sínum árið 2021. Hvorugur gat stað­ist greiðslu­mat einn og sér og gripu þeir því til þess ráðs að skrá sig í sam­búð. Vinunum gekk vel að búa saman þar til báðir eign­uð­ust kærustur. Mánuði eftir að þær fluttu inn seldi Hannes sinn hlut til vinar síns og þau fóru í íbúð­ar­leit að nýju.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár