Mynd: Golli

Finnst „mjög ólíklegt“ að geta keypt húsnæði ein

Sandra H. Smára­dóttir verður þrí­tug síðar á árinu og leigir ásamt vin­konu sinni. Hún sér ekki fram á að geta kom­ist inn á fast­eigna­markað ein síns liðs. „Þetta á að vera hægt. Ef þetta er á annað borð stefnan – að allir þurfa að eiga sitt – þá á þetta að vera hægt,“ segir hún.

„Ég er ein, þannig að það er eig­in­lega ekki fræði­legur. Ég held ég kæm­ist ekki í gegnum greiðslu­mat.“

Þetta segir hin tæp­lega þrí­tuga Sandra H. Smára­dóttir um mögu­leika sína á að kom­ast inn á fast­eigna­markað á Íslandi. Sandra er með meistara­gráðu í mann­fræði með áherslu á umhverf­is­mál, starfar í félags­mið­stöð og leigir í miðbæ Reykja­víkur ásamt vin­konu sinni.

Minna öryggi á leigumarkaði

„Ég hata ekki að vera á leigu­mark­aði. Ég er heppin með leigu og leigu­sala og mín skoðun lit­ast af því. Ég er mjög ánægð með leigusal­ann minn og á gott sam­band við hana. Ég geri mér fulla grein fyrir því að ég er í góðum aðstæðum núna og hef reyndar verið það líka í fyrri íbúðum.“

Hún seg­ist þó vera með­vituð um að það að búa í leigu­hús­næði bjóði ekki upp á mikið hús­næð­is­ör­yggi. „Íbúðin gæti selst og maður er bara með leigu­samn­ing í …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Ég er örugg með mitt húsnæði í furugerðinu þar sem eg er núna leigi hjá flagsbustöðum er búin að gerast siðan2012 og fram á þennan dager búnað verai11arog8manuði
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fasteignamarkaðurinn

Skráði sig í sambúð með vini sínum til að standast greiðslumat
ViðtalFasteignamarkaðurinn

Skráði sig í sam­búð með vini sínum til að stand­ast greiðslu­mat

Hannes Árni Hann­es­son keypti sína fyrstu íbúð með vini sínum árið 2021. Hvorugur gat stað­ist greiðslu­mat einn og sér og gripu þeir því til þess ráðs að skrá sig í sam­búð. Vinunum gekk vel að búa saman þar til báðir eign­uð­ust kærustur. Mánuði eftir að þær fluttu inn seldi Hannes sinn hlut til vinar síns og þau fóru í íbúð­ar­leit að nýju.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár