„Þetta er frekar grimm framtíð fyrir marga“

Má Wolfgang Mixa, dós­ent í við­skipta­fræði við HÍ, finnst óskilj­an­legt að verð­tryggð fast­eigna­lán hafi ekki verið tengd við hús­næð­is­vísi­tölu. Hann segir mögu­leika almenn­ings að kom­ast á fast­eigna­mark­að­inn svip­aða og árið 2011, þegar allt var í kalda­koli í íslensku efna­hags­lífi.

„Þetta er frekar grimm framtíð fyrir marga“
Verð­bólga Fólk með verð­tryggð fast­eigna­lán fengi skell ef það kæmi verð­bólgu­skot, til dæmis ef ferða­þjón­ustan myndi hrynja. Mynd: Heiða Helgadóttir

Már Wolfgang Mixa, dós­ent í við­skipta­fræði við Háskóla Íslands, segir að í dag taki það álíka langan tíma fyrir mann­eskju á leigu­mark­aði að safna sér fyrir útborgun og árið 2011. Þegar allt var, að hans sögn, „í kalda­koli á Íslandi, efna­hags­lega séð“. Þá telur hann að yfir­færa megi þessa mögu­leika yfir á aðra hópa en leigj­endur vegna þess að bæði laun og leigu­verð hafi hækkað.

Már segir að nú, líkt og þá, sé það enn fremur um það bil von­laust fyrir ein­stæða for­eldra á leigu­mark­aði að safna sér fyrir íbúð. „Þess vegna er stór hluti af þeim hópi sem lifa nokk­urs konar YOLO – you only live once lífi. Fólk bara sér að það mun aldrei ná þessu. Svo þú kaupir þér flott brauð með kaff­inu og eitt­hvað svo­leiðis.“

Árið 2011 var þó mjög stutt í það að mik­ill umsnún­ingur í efna­hags­líf­inu ætti sér stað. Spurður hvernig hann …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    "Þó hefur húsnæðisverð frá árinu 2010 hækkað langt umfram verðbólgu."

    Einmitt af þessari ástæðu er það afleit og stórvarasöm hugmynd að tengja verðtryggingu húsnæðislána við fasteignavísitölu. Ef það væri gert myndu eftirstöðvar og greiðslubyrði slíkra lána hækka mun hraðar en þau gera nú þegar með tengingu við vísitölu neysluverðs.

    Lausnin á þeim fjölmörgu efnahagslegu vandamálum sem gríðarleg útbreiðsla verðtryggingar skapar hér á landi er ekki ekki að "fikta" í vísitöluviðmiðum eða breyta þeim með einhverjum "hókus pókus" aðgerðum sem gera ekkert nema að viðhalda vandamálunum.

    Eina lausnin á vandamálunum sem verðtrygging veldur er að afnema hana. Það væri sáraeinföld aðgerð og útfærslan á henni hefur legið fyrir mörgum árum saman. Samþykki meirihluta Alþingis er það eina sem þarf: https://www.althingi.is/altext/154/s/0109.html
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fasteignamarkaðurinn

ViðtalFasteignamarkaðurinn

Skráði sig í sam­búð með vini sínum til að stand­ast greiðslu­mat

Hannes Árni Hann­es­son keypti sína fyrstu íbúð með vini sínum árið 2021. Hvorugur gat stað­ist greiðslu­mat einn og sér og gripu þeir því til þess ráðs að skrá sig í sam­búð. Vinunum gekk vel að búa saman þar til báðir eign­uð­ust kærustur. Mánuði eftir að þær fluttu inn seldi Hannes sinn hlut til vinar síns og þau fóru í íbúð­ar­leit að nýju.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár