Hækka verð til að verja hagnaðinn

Móð­ur­fé­lag Ölgerð­ar­innar hagn­að­ist um 398 millj­ónir króna á fyrsta árs­fjórð­ungi. Vöxt­ur­inn skýrist þó fyrst og fremst af nýju félög­unum Gæða­bakstri og Kjarna­vörum, því rekstur eldri hluta sam­stæð­unnar dróst saman milli ára. Á sama tíma boðar Ölgerðin verð­hækk­anir vegna hækk­andi olíu- og álverðs.

Hækka verð til að verja hagnaðinn
Upp Bæði hagn­aður og verð Ölgerð­ar­innar hefur þok­ast uppá við. Mynd: Kristinn Magnússon

Bera, móð­ur­fé­lag Ölgerð­ar­innar, hagn­að­ist um 398 millj­ónir króna á fyrsta árs­fjórð­ungi fjár­hags­árs­ins. Hagn­að­ur­inn jókst lít­il­lega að nafn­virði frá sama tíma í fyrra, þegar hann var 379 millj­ónir króna. Þetta kemur fram í árs­hluta­upp­gjöri félags­ins sem birt var fyrir helgi. 

Sala sam­stæð­unnar jókst um tæp 15 pró­sent og rekstr­ar­hagn­aður fyrir afskriftir, fjár­magnsliði og skatta jókst um 26 pró­sent. Sam­an­burð­ur­inn er þó flók­inn, því tvö félög, Gæða­bakstur og Kjarna­vörur, bætt­ust við sam­stæðu Beru í des­em­ber. Þau voru því ekki inni í töl­unum fyrir sama tíma­bil í fyrra en eru inni í töl­unum núna.

Lykillinn í vextinum

Þessi við­bót virð­ist skipta tals­verðu fyrir nið­ur­stöð­una. Rekstr­ar­hagn­aður Beru fyrir afskriftir, fjár­magnsliði og skatta var 1.225 millj­ónir króna á fjórð­ungnum. Þar af komu 285 millj­ónir frá Gæða­bakstri og Kjarna­vörum.

Ef félögin tvö eru tekin út úr jöfn­unni stendur eftir um 940 millj­óna króna rekstr­ar­hagn­aður. Á sama tíma í fyrra var sam­bæri­leg tala 970 millj­ónir króna. Batnandi …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár