Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
Lánveitendur Samkvæmt tilkynningu til fyrirtækjaskrár lánuðu Þorsteinn Már og Helga börnum sínum milljarða til að kaupa Samherjahlut þeirra. Nú hefur það lán verið gert upp, með óvenjulegum hætti.

Seljendalán sem Þorsteinn Már Baldvinsson og Helga Steinunn Guðmundsdóttir veittu börnum sínum árið 2020 fyrir kaupum á hlut þeirra í útgerðarveldinu Samherja – þegar fram fóru ein umfangsmestu kynslóðaskipti sem orðið höfðu í íslenska kvótakerfinu – hefur verið greitt upp. Það var gert með því að breyta 80 milljóna evra láni í nýtt hlutafé, en ekki með peningagreiðslu.

Þetta sýna ársreikningar félagsins K&B ehf., sem heldur utan um eignarhlut systkinanna Kötlu og Baldvins Þorsteinsbarna, og eignarhaldsfélaganna Steins og 600, sem bæði eru í eigu fjölskyldunnar, sem og önnur gögn sem lögð hafa verið fram hjá yfirvöldum.

K&B á tæpan helming af öllu útgefnu hlutafé í Samherja hf, sem er eitt stærsta útgerðarfélag landsins, auk þess sem Baldvin tók við forstjórastöðunni í útgerðinni af pabba sínum, Þorsteini, á síðasta ári. 

Réttindin sem fylgja nýju bréfunum sem félög Þorsteins og Helgu fengu sem greiðslu fyrir seljendalánið tryggir handhöfum þeirra fasta árlega ávöxtun, …

Kjósa
35
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Maður hefur heyrt því fleykt að íslendingar virðist mjög húsbændhollir. (Húsbóndi í merkingunni sá sem er duglegastur að nýta sér Ríkið)
    0
  • GRR
    Gísli Ragnar Ragnarsson skrifaði
    Þessi fjölskylda hirðir stóran hluta rentunnar af auðlindinni sem samkvæmt lögum er i þjóðareign.
    Hér er fjallað um aðra fjölskyldu sem er i sömu sporum:
    https://heimildin.is/grein/26707/milljarda-fjarfestingar-gudbjargar-sem-ekki-sjast-i-skyrslunni/

    Þegar núverandi kvótakerfi var komið á, á sínum tíma, var nígeríska leiðin valin af íslenskum stjórnvöldum þegar sú norska var fær og hefði verið sú eðlilega ef hagsmunir heildarinnar hefðu verið hafðir í fyrirrúmi.
    Síðan hefur svo sem lítið verið gert til að leiðrétta þetta óréttlæti, því miður. Smáviðleitni í fyrra en betur má ef duga skal.
    En það sem e.t.v. er furðulegast, flestum virðist nákvæmlega sama? Þannig blasir það að minnsta kosti við manni.
    14
  • Bergur Sigmundsson skrifaði
    Svona sukk og svindl hringl er þetta fólk að passa uppá með því vera á móti Evrópusambandinu,þar er svona ekki hægt
    5
    • Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
      Hvernig myndi ESB koma í veg fyrir þetta? Vinsamlegast útskýrðu það skilmerkilega.
      -1
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Mammon lætur ekki að sér hæða.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár