„Kannast ekki við þá mynd sem hefur verið dregin þar upp“

Guðrún Hafsteins­dóttir krafði Ingu Sæland svara um hver hafi ákveðið afsögn Guðmundar Inga Kristins­sonar úr ríkis­stjórn. Í skila­boðum sem aðstoðar­kona hans sendi honum í janúar sagði að ákvörðunin hefði verið tekin af „valkyrjunum“. Inga segir þau Guðmund Inga greina á um aðdrag­anda málsins og stendur við sínar ákvarðanir.

Stendur við sitt
Stendur við sitt Inga Sæland seg­ist standa við þær ákvarð­anir sem hún tók í kringum brott­hvarf Guð­mundar Inga úr rík­is­stjórn Kristrúnar Frosta­dóttur. „Val­kyrj­urnar“ voru, í skila­boðum aðstoð­ar­manns Guð­mundar Inga til hans, sagðar hafa tekið ákvörðun um að hann ætti að víkja. Mynd: Golli

Inga Sæland, mennta- og barnamála­ráðherra og formaður Flokks fólksins, segist ekki kannast við þá mynd sem dregin hefur verið upp af brott­hvarfi Guðmundar Inga Kristins­sonar úr ríkis­stjórn. Hún segir þau Guðmund Inga greina á um aðdrag­anda og ástæður þess að hann lét af embætti og stendur við þær ákvarðanir sem hún tók.

Þetta sagði Inga í óundirbúnum fyrir­spurnum á Alþingi í dag eftir að Guðrún Hafsteins­dóttir, formaður Sjálfstæðis­flokksins, krafði hana svara vegna skilaboða sem Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir, þáverandi aðstoðar­kona Guðmundar Inga, sendi honum áður en hann lét af embætti.

„Ég held að þér væri nær að stíga inn í eigin skíta­pott og reyna að hræra aðeins upp í honum í stað þess að koma hér fram með dylgjur og ósann­indi“
Inga Sæland
mennta- og barna­mála­ráð­herra

Í skila­boðunum, sem RÚV birti í dag, sagði Guðbjörg að ákvörðunin væri „eingöngu valkyrjanna“ og að Guðmundur Ingi gæti annaðhvort tilkynnt veikinda­leyfi og snúið síðar aftur á Alþingi eða „farið í stríð“.

Leiðtogar ríkis­stjórnarinnar, þær Kristrún Frosta­dóttir forsætis­ráðherra, Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir utan­ríkis­ráðherra og Inga Sæland, fengu snemma viðurnefnið Valkyrjurnar.

Spurði hvort þetta væri enn „bara upplifun“

Guðrún sagði skila­boðin varpa nýju ljósi á ástæður þess að Guðmundur Ingi lét af ráðherra­embætti. 

„Nú er það skjalfest í skilaboði fyrr­verandi aðstoðar­manns, sem er jafnframt eiginkona hæstvirts félags- og húsnæðis­mála­ráðherra, að það voru valkyrjurnar sem ráku hátt­virtan þingmann og fyrr­verandi ráðherra. Honum var hótað stríði ef hann myndi ekki hlýða og hann fékk ekki einu sinni að rita uppsagnar­bréfið sjálfur,“ sagði Guðrún.

Hún vísaði til fyrri viðbragða Ingu við ásökunum Guðmundar Inga um að honum hefði verið bolað úr embætti. Inga sagði þá að Guðmundur Ingi væri að lýsa sinni upplifun en að hennar upplifun væri allt önnur.

„Er þetta enn þá bara upplifun þing­mannsins?“ spurði Guðrún í dag.

Hún spurði jafnframt hvort Inga vildi biðja Guðmund Inga eða þjóðina afsökunar og sakaði ráðherra um að hafa ekki sagt rétt frá aðdrag­anda brott­hvarfs hans.

Segir fleiri en eina hlið á málinu

Inga sagði ráðherra­starfi fylgja mikla ábyrgð og mikið álag og að stundum þyrfti að taka erfiðar ákvarðanir. „Það er ljóst að okkur Guðmund Inga greinir á um aðdrag­anda og ástæður þeirra breytinga sem urðu. Ég kannast ekki við þá mynd sem hefur verið dregin þar upp,“ sagði hún.

Inga vísaði í kjölfarið til veikinda Guðmundar Inga og þess að hún hefði sjálf gegnt embætti hans á meðan hann var í veikinda­leyfi.

„Takið ábyrgð á ykkar störfum og byrjað á að segja sann­leik­ann“
Guðrún Haf­steins­dóttir
for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins

„Þegar mér varð ljóst í hversu stóra aðgerð Guðmundur Ingi fór þá lá það ljóst fyrir að mennta- og barnamála­ráðuneytið gæti ekki svo vikum og jafnvel mánuðum skipti verið án öruggrar forystu.“

Hún sagði fleiri en eina hlið vera á málinu en að hún teldi ekki rétt að ræða persónuleg málefni eða heilsufar Guðmundar Inga frekar á opnum vettvangi.

„Mér þykir leitt að samskiptin hafi þróast með þessum hætti. Ég ber ábyrgð á mínum ákvörðunum og ég stend við þær. Um leið virði ég að Guðmundur upplifði málið með öðrum hætti en ég.“

Inga svaraði hins vegar ekki sérstak­lega þeirri full­yrðingu í skila­boðum Guðbjargar að ákvörðunin hefði verið tekin af „valkyrjunum“.

„Stíga inn í eigin skítapott“

Guðrún sagði í seinni ræðu sinni að gögn styddu það sem hún hefði haldið fram og gagnrýndi breytingar sem orðið hafa á skipan ríkis­stjórnarinnar. „Það er lágmarks­krafa að ríkis­stjórnin sýni gagnsæi í sínum störfum, sýni ábyrgð og segi satt og rétt frá,“ sagði hún.

Ráðherra eigi að segja af sér ef þeir gætu ekki veitt almenningi skýr og sann­færandi svör. „Nú er nóg komið. Takið ábyrgð á ykkar störfum og byrjað á að segja sann­leikann.“

Orða­skiptin hörðnuðu enn frekar þegar Inga tók aftur til máls. Hún mótmælti meðal annars full­yrðingu Guðrúnar um fjölda þeirra sem hefðu gegnt embætti mennta- og barnamála­ráðherra og sakaði hana um dylgjur og ósannindi.

Skila­boðinAðstoð­ar­kona Guð­mundar Inga sagði í skila­boðum til hans, sem RÚV birti fyrr í dag, að hann ætti þann kost að snúa til baka á þing eða fara í stríð. Val­kyrj­urnar hefðu ákveðið að hann ætti að hætta sem ráð­herra.

„Þannig að hátt­virtur þingmaður, ég held að þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott og reyna að hræra aðeins upp í honum í stað þess að koma hér fram með dylgjur og ósannindi,“ sagði Inga.

Þórunn Svein­bjarnar­dóttir, forseti Alþingis, greip þá inn í og bað ráðherra að gæta orða sinna. Að loknum orða­skiptunum ítrekaði forseti að ráðherrar og þingmenn skyldu gæta kurteisi í ræðustól Alþingis.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Átök í Flokki fólksins

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár