ESA stefnir Íslandi vegna bókunar 35

Eft­ir­lits­stofnun EFTA, ESA, hefur stefnt Íslandi fyrir dóm vegna bók­unar 35. Íslenska ríkið hefur ekki inn­leitt bók­un­ina með réttum hætti. ESA telur íslensk lög ekki tryggja að ein­stak­lingar og fyr­ir­tæki njóti til fulls rétt­inda sam­kvæmt EES-samn­ingnum. Bókun 35 hefur verið hluti af samn­ingnum frá upp­hafi.

ESA stefnir Íslandi vegna bókunar 35
Ekki klárað Reynt hefur verið, án árang­urs, að inn­leiða bókun 35 í íslensk lög. Mynd: Bára Huld Beck

Eft­ir­lits­stofnun EFTA, ESA, vís­aði í dag máli gegn íslenska rík­inu til EFTA-dóm­stóls­ins vegna þess að íslensk lög tryggi ekki for­gang inn­leiddra EES-reglna þegar þær stang­ast á við aðrar inn­lendar reglur. Stofn­unin telur Ísland ekki hafa upp­fyllt skuld­bind­ingar sínar sam­kvæmt bókun 35 við EES-samn­ing­inn. 

„Ein­stak­lingar og fyr­ir­tæki þurfa að geta treyst á þau rétt­indi sem þau njóta í krafti EES samn­ings­ins á Íslandi“
Arne Røksund
for­seti ESA

Bókunin kveður á um að Ísland, Liechtenstein og Noregur tryggi að inn­lend lög sem inn­leiða skuld­bind­ingar sam­kvæmt EES-samn­ingnum njóti for­gangs ef þau rekast á aðrar inn­lendar reglur. Að mati ESA hefur íslenska ríkið ekki inn­leitt þessa skyldu með full­nægj­andi hætti. Afleið­ingin sé sú að ein­stak­lingar og fyr­ir­tæki geti ekki notið til fulls þeirra rétt­inda sem samn­ing­ur­inn tryggir þeim.

Áhyggjur fyrst settar fram árið 2012

ESA lýsti fyrst áhyggjum af inn­leið­ingu bók­un­ar­innar á Íslandi árið 2012. Þá lágu fyrir dómar Hæsta­réttar …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár