Áhlaup á yfir 100 staði í fjórum Evrópulöndum

Yfir 1.000 lög­reglu­menn tóku þátt í aðgerðum á meira en 100 stöðum í fjórum löndum. Fram­kvæma á 14 hand­töku­skip­anir og leggja hald á eignir að and­virði um 48,6 millj­óna evra.

Englarnir
Englarnir Lög­reglan vildi „hvorki stað­fest né neitað“ því hvaða sam­tök væru skot­mark aðgerð­anna en þýskir fjöl­miðlar full­yrða það sé Hells Angels. Mynd: EPA

Lögregla gerði á mið­viku­dag áhlaup á vél­hjóla­gengi í Þýska­landi og þremur öðrum Evr­ópu­löndum, að sögn lög­reglu­yf­ir­valda. Fjöl­miðlar greindu frá því að aðgerðin hefði beinst gegn Hells Angels.

Aðgerð­irnar hófust snemma á mið­viku­dag og beindust að meira en 100 stöðum í Þýska­landi, Belgíu, Búlgaríu og Hollandi. Yfir 1.000 lög­reglu­menn tóku þátt, að sögn þýsku lög­regl­unnar.

„Verið er að fram­fylgja 14 hand­töku­skip­unum og leggja hald á eignir að and­virði um 48,6 millj­óna evra,“ sagði lög­reglan í Duisburg í vest­ur­hluta Þýska­lands. Sú fjár­hæð er jafn­virði 6,6 millj­arða króna.

„Rann­sókn­irnar bein­ast að alls 71 grun­uðum, þar á meðal þeim sem standa að pen­inga­þvættis­neti sem starfar í Þýska­landi og víðar í Evrópu, auk hátt­settra félaga í vél­hjóla­gengi,“ sagði í yfir­lýs­ingu lög­regl­unnar.

Talskona lög­regl­unnar sagði við AFP að hún gæti „hvorki stað­fest né neitað“ því hvaða sam­tök væru skot­mark aðgerð­anna. Dag­blaðið Bild og aðrir fjöl­miðlar sögðu að um Hells Angels væri …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár