Trump fagnar „siðferðilega bindandi“ samkomulagi um sjálfseftirlit með gervigreind

For­svars­menn tækni­fyr­ir­tækja hafa skuld­bundið sig til að setja gervi­greind örygg­is­ramma, en sam­komu­lagið verður ekki laga­lega bind­andi. Á sama tíma eykst þrýst­ingur á banda­ríska þing­menn að hemja þróun tækn­innar vegna ótta um áhrif hennar á störf og sam­fé­lag.

Trump fagnar „siðferðilega bindandi“ samkomulagi um sjálfseftirlit með gervigreind
Topp­arnir Donald Trump fund­aði með Mark Zuckerberg, Elon Musk, Jeff Bezos, Satya Nadella. Mynd: KENT NISHIMURA / AFP

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti sagði í dag að stjórn­endur tækni­fyr­ir­tækja, sem komu saman í Hvíta hús­inu til að ræða reglur um gervi­greind, hefðu und­ir­ritað „sið­ferði­lega bind­andi“ skuld­bind­ingu um að tryggja full­nægj­andi örygg­is­ráð­staf­anir við þróun þess­arar tækni, sem fleygir hratt fram.

„Þeir ætla að hafa eft­ir­lit með sjálfum sér,“ sagði Trump eftir fund­inn. Þar komu saman helstu for­svars­menn á sviði gervi­greindar, meðal ann­ars Jensen Huang hjá Nvidia, Greg Brockman hjá OpenAI og Dario Amodei hjá Anthropic.

Trump sagði stjórn­end­urna hafa und­ir­ritað sam­komu­lag þar sem þeir festu skrif­lega skuld­bind­ingu sína um sjálfs­eft­ir­lit. Sam­komu­lagið væri sið­ferði­lega bind­andi en ekki hægt að fram­fylgja því með laga­legum hætti.

Þegar Trump ræddi við blaða­menn fyrir utan skrif­stofu sína í Hvíta hús­inu, umkringdur valda­mestu stjórn­endum tækni­fyr­ir­tækja heims, stað­festi hann jafn­framt að hann myndi opin­ber­lega breyta heiti tækn­innar úr „gervi­greind“ í „ofur­greind“, „vegna þess að hún er ekki gervi“.

Mark Zuckerberg, stjórn­andi Meta, sagði sam­komu­lag­inu ætlað að full­vissa …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár