Svikasögur
Leikmynd og búningar: Eva Signý Berger
Lýsing: Pálmi Jónsson
Hljóðmynd: Þorbjörn Steingrímsson
Sviðshreyfingar: Ernesto Camilo Valdes
Dramatúrg: Maríanna Clara Lúthersdóttir og Æsa Guðrún Bjarnadóttir
Óvanalegt feilspor hjá Maríu sem er rétt bjargað fyrir horn.
Það er ætíð fagnaðarefni þegar ný íslensk leikverk rata á leiksvið og sérstaklega ánægjulegt að bæði Þjóðleikhúsið og Borgarleikhúsið hefji leikárið með íslenskum höfundum. Svikasögur var frumsýnt um liðna helgi og er nýjasta leiksýning Maríu Reyndal.
Á síðastliðnum árum hefur María skrifað og leikstýrt hjartnæmum sýningum sem fjalla iðulega um ofurvenjulegt fólk í erfiðum aðstæðum. Síðast beindi hún augum sínum að heilabilun eldri konu og þeim fjölskylduáskorunum sem slíkum veikindum fylgja. Nú horfir hún til baka, færir áhorfendur aftur til níunda áratugsins og tekur fyrir reynsluheim unglingsstelpu sem stendur á tímamótum.
Nanna, leikin af Berglindi Öldu Ástþórsdóttur, stendur á sviði í þann mund að syngja á stórum tónleikum, hún lítur yfir öxl og rifjar upp örlagaríkt tímabil í æsku þegar allt breyttist. Yngri Nönnu leikur Rebecca Lív Biraghi. Pabbi Nönnu, Tryggvi, leikinn af Hákoni Jóhannessyni, er pólstjarnan í lífi hennar og eru feðginin náin en afdrifarík ákvörðun hans á eftir …



















































Athugasemdir