Myndband: Golli

Hvað gerðist á Krýsuvíkurvegi?

Ökumaður bif­reiðar sem hafn­aði utan vegar á Krísu­vík­ur­veg­inum, þar sem þrennt lét lífið, var á 233 kíló­metra hraða sam­kvæmt appi sem ung­menni nota sín á milli til þess að fylgj­ast með hraða­tölum.

Upp­lýs­ingar úr svoköll­uðu Life360 appi sýna að bif­reið sem var ekið á Krísu­vík­ur­veg­inum fór hrað­ast í 233 kíló­metra hraða áður en bif­reiðin fór út af og skall á stein. Þrjú ung­menni lét­ust í slys­inu, það yngsta fætt 2009 og það elsta 2005. Það er 90 kíló­metra hámark­aðs­hraði á veg­inum, en mælt með að öku­menn aki á 70 kíló­metra hraða á veg­kafl­anum þar sem slysið átti sér stað. Ekki er hægt að full­yrða að mæl­ingin í app­inu sé nákvæm og því þarf að taka henni með fyr­ir­vara.

BlindhæðErfitt er fyrir óvana öku­menn að sjá beygju sem leiðir til hægri handan blind­hæðar.

Blaða­maður hefur séð mynd­band úr app­inu sem sýnir að öku­maður er á miklum hraða á stuttum kafla Krýsu­vík­ur­veg­ar­ins. Hann missir stjórn á bílnum í beygju sem bíður handan blind­hæðar nærri Blá­fjalla­af­leggjar­anum og sést það með striki sem táknar …

Kjósa
59
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Maður verður að láta ógert að tjá sínar hugsanir hér til fulls. Þetta er í alla staði afar sorglegt.
    7
  • GH
    Greg Hill skrifaði
    Tilgangurinn með life360 appinu var mjög ólíkur því hvernig þessir unglingar notuðu það. En það er einmitt það sem fólk á þessum aldri gerir: Það snýst ekki um tilganginn, heldur hvað þú getur gert við það. Þeir sem skrifa slík forrit þurfa að hugsa meira út fyrir kassann.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár