Stærsta arðgreiðslan fyrir Skólamat fram til þessa

Fé­lag­ið Skóla­mat­ur sem sel­ur skóla­mötu­neyt­um mat hagn­að­ist um 274 millj­ón­ir króna fyr­ir skatt í fyrra og greið­ir nú meira í arð.

Stærsta arðgreiðslan fyrir Skólamat fram til þessa
Eigendur Skólamatar Fanný Axelsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs- og markaðssviðs, og Jón Axelsson forstjóri, hafa tekið við rekstri Skólamatar ehf. af föður sínum, Axel Jónssyni, hér í miðið. Mynd: Víkurfréttir

Fjölskyldufélagið Skólamatur ehf. sem sér um matinn í leik- og grunnskólum víðast hvar á höfuðborgarsvæðinu greiddi eigendum sínum 90 milljónir króna í arð í fyrra og stefnir á að greiða 100 milljónir í arð á þessu ári.

Það þýðir að eigendurnir, Axel Jónsson og börn hans, Fanný Sigríður Axelsdóttir og Jón Axelsson, sem eiga 30% hlut hvert, fá 30 milljónir króna hvert í greiðslur eða 23,4 milljónir króna eftir fjármagnstekjuskatt, á þessu ári.

Í fyrra, þegar 90 milljónir króna voru greiddar í arð, átti Axel 67% í félaginu, en hann hefur nú framselt 37% hlutar í félaginu til barna sinna og félagsins sjálfs.

Máltíðir í grunnskólum voru gerðar gjaldfrjálsar á þarsíðasta skólaári með niðurgreiðslum frá ríkinu. Kostnaður vegna þess var áætlaður 3,7 milljarðar króna, en í Reykjavíkurborg einni og sér reyndist hann 1,7 milljarðar króna í fyrra. Þar af greiddi ríkið tæplega 1,3 milljarða króna fyrir gjaldfrjálsar máltíðir í Reykjavík. …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Tæknistreita leiddi til skógarbaða
1
Viðtal

Tækn­istreita leiddi til skóg­ar­baða

Shinrin-yoku, eða skóg­ar­bað eins og það út­leggst á ís­lensku, er heiti á gagn­reyndri að­ferð til streitu­los­un­ar þar sem er ver­ið að beina hug­an­um og skyn­fær­un­um með­vit­að að nátt­úr­unni. Shinrin-yoku var við­bragð við versn­andi lýð­heilsu í Jap­an og er nú hluti af heil­brigðis­kerf­inu þar. Hér hafa þær Gunn­þóra Ólafs­dótt­ir og Ír­is Lana Birg­is­dótt­ir í sam­vinnu við Skóg­rækt­ar­fé­lag Reykja­vík­ur boð­ið upp á skóg­ar­böð í Heið­mörk, sem hafa þó ekk­ert með eig­in­leg böð að gera.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Sáu sárin sem hún faldi
1
ViðtalElsku Embla

Sáu sár­in sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár lið­in frá frá­falli Emblu Arn­ars Katrín­ar­dótt­ur. And­lát henn­ar var harma­fregn fyr­ir sam­fé­lag­ið, en fjöl­skyld­an sat eft­ir með sorg­ina. Löngu áð­ur en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orð­ið ljóst að hún væri orð­in al­var­lega veik, en vegna þess hve þög­ul veik­ind­in voru tók tíma að fá áheyrn. Jafn­vel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörð­uð á fimmtán ára af­mæl­is­dag­inn sinn.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár