Húsnæðisvextir hækkaðir í 9,44%

Ari­on banki til­kynn­ir vaxta­hækk­un.

Húsnæðisvextir hækkaðir í 9,44%
Húsnæði Íbúðaverð hefur hækkað um 2,15% á síðustu 12 mánuðum, en verðbólga verið um 5 prósent. Mynd: Golli

Húsnæðislánavextir halda áfram að hækka eftir að Seðlabankinn tilkynnti um stýrivaxtahækkun upp á 0,25 prósentustig upp í 7,75% í síðustu viku.

Óverðtryggðir vextir húsnæðislána Arion banka hafa í dag verið hækkaðir í 9,44%, samkvæmt tilkynningu frá bankanum. Í gær voru þeir 9,19% og í mars 8,94%.

Fari veðhlutfallið yfir 50% hækka vextirnir upp í 10,44% fyrir þann hluta lánsins.

Enn er hægt að fá lán á föstum vöxtum til þriggja ára á lægri vöxtum, eða 8,75%.

Húsnæðislánavextir á Íslandi eru afar háir í samanburði við nágrannalönd. Þeir eru nálægt vöxtum í Víetnam, Kúbu, Indónesíu og Bólivíu. Aðeins tvö lönd í Evrópu eru með hærri vexti á húsnæðislánum, Rússland og Úkraína, en þau eiga í stríðsátökum.

Verðtryggðir vextir hjá Arion banka eru 4,64% upp að 50% veðsetningarhlutfalli, en þá hækka þeir í 5,89%. Höfuðstóll lánsins hækkar með verðbólgunni í sama hlutfalli og vísitala neysluverðs í hverjum mánuði. Verðtryggðir vextir hafa hækkað mikið síðustu ár.

Á sama tíma og vextir hækka er íbúðaverð að lækka að raunvirði. Þannig hefur verð fasteigna hækkað um 2,15% síðustu 12 mánuði, en verðbólgan verið 5,1%.

Verð fasteigna er hins vegar ekki notað við útreikning verðbólgunnar, heldur er stuðst við „reiknaða húsaleigu“, sem byggir á leiguverði. Það hækkaði um 0,6% í aprílmánuði einum og sér. 

Mikil kólnun hefur orðið á fasteignamarkaði að undanförnu og safnast upp óseldar íbúðir. Samkvæmt Húsnæðis- og mannvirkjastofnun var 4.341 íbúð óseld á höfuðborgarsvæðinu í apríl, eða 900 fleiri en á sama tíma í fyrra, og gekk hægast að selja dýrar, nýjar íbúðir í fjölbýlishúsum, svo sem á Heklureitnum, Orkureitnum og í Stefnisvogi í Reykjavík.

Húsnæðislánavextir Arion banka hafa hækkað frá því í fyrra, þegar óverðtryggðir, breytilegir vextir fóru niður fyrir 8,94% þegar verðbólga tók að hjaðna eftir eftirköst Covid-faraldursins. Hæst fóru þeir í 10,89% frá ágúst 2023 til september 2024. Þá voru verðtryggðir vextir hins vegar aðeins 2,94%. Á árinu fyrir Covid-faraldurinn, 2019, voru óverðtryggðir, breytilegir vextir aðeins um 5% hjá Arion banka, en árin þar áður frá 5,6% til 7,05%.

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Húsnæðismál

Þau sem hafa hagnast ævintýralega á Þorpinu
FréttirHúsnæðismál

Þau sem hafa hagn­ast æv­in­týra­lega á Þorp­inu

Ár­ið 2021 keypti hóp­ur fjár­festa í gegn­um eign­ar­halds­fé­lag­ið Þorp­ið 6 ehf. lóð­ir og bygg­ing­ar­rétt­indi á Ár­túns­höfða í Reykja­vík fyr­ir 7,4 millj­arða króna. Fyrr á þessu ári voru lóða­rétt­ind­in seld fyr­ir ell­efu millj­arða króna án þess að nokk­uð hafi ver­ið byggt á svæð­inu. Við­skipt­in sýna vel hvernig fjár­fest­ar geta hagn­ast æv­in­týra­lega með því að kaupa og selja lóð­ir og bygg­ing­ar­rétt­indi á til­tölu­lega skömm­um tíma.
Löngu lækkunarskeiði í raunverði íbúða lokið
FréttirHúsnæðismál

Löngu lækk­un­ar­skeiði í raun­verði íbúða lok­ið

Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­un kynnti ný­ver­ið nýtt fast­eigna­mat fyr­ir ár­ið 2025. Heild­armat á íbúð­um lands­ins allt hækk­aði um 3,2 pró­sent. Mun þetta vera í fyrsta sinn síð­an ár­ið 2010 að verð­þró­un íbúð­ar­hús­næð­is mæl­ist lægri en verð­bólga, sem mæl­ist rúm­lega sex pró­sent. Ým­is­legt bend­ir þó til þess að þessu lækk­un­ar­skeiði sé nú lok­ið og raun­verð­ið muni mæl­ast hærra en verð­bólga á næstu miss­er­um.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Milljarða fjárfestingar Guðbjargar sem ekki sjást í skýrslunni
1
Úttekt

Millj­arða fjár­fest­ing­ar Guð­bjarg­ar sem ekki sjást í skýrsl­unni

Við­skipta­veldi Guð­bjarg­ar Matth­ías­dótt­ur bygg­ir fyrst og fremst á hagn­aði í sjáv­ar­út­vegi. Frá því að hún sett­ist í stjórn Ís­fé­lags­ins hafa nærri 15 millj­arð­ar streymt úr Ís­fé­lag­inu í Vest­manna­eyj­um til Guð­bjarg­ar og fjöl­skyldu. Hvorki hún né fjár­fest­ing­ar henn­ar koma fram í skýrslu sem unn­in var að beiðni Al­þing­is um eign­ir, eig­end­ur og fjár­fest­ing­ar stærstu út­gerð­ar­fé­laga lands­ins.
Halldór Jörgen Olesen
3
Aðsent

Halldór Jörgen Olesen

Hver borg­ar fyr­ir arð­semi bank­anna?

Ís­lensku bank­arn­ir græða nærri tvö­falt meira á hverri lán­aðri krónu en evr­ópsk­ir bank­ar. Há­ir stýri­vext­ir Seðla­bank­ans juku hagn­að­inn, en bjuggu hann ekki til. Skýr­ing­in ligg­ur í þrennu: að­eins þrír stór­ir bank­ar skipta mark­aðn­um á milli sín, verð­tryggð lán færa verð­bólgu­áhætt­una frá bönk­un­um yf­ir á heim­il­in, og krón­an lok­ar land­inu fyr­ir sam­keppni að ut­an. Töl­urn­ar stand­ast skoð­un og spurn­ing­arn­ar sem þær vekja gera það líka.
Samfylkingin klofnar vegna brottfararstöðvar: Hvað annað átti að gera?
5
Stjórnmál

Sam­fylk­ing­in klofn­ar vegna brott­far­ar­stöðv­ar: Hvað ann­að átti að gera?

Þing­nefnd­in sem fjall­aði um ný­sam­þykkta brott­far­ar­stöð fékk ábend­ing­ar og hug­mynd­ir að minnst tíu öðr­um leið­um sem hægt væri að fara en að setja börn í lok­að úr­ræði í brott­far­ar­stöð. Sam­fylk­ing­in virð­ist klof­in í af­stöðu sinni til máls­ins þó að þingl­ið flokks­ins hafi hreykt sér af sam­þykkt lag­anna.

Mest lesið í mánuðinum

Sáu sárin sem hún faldi
1
ViðtalElsku Embla

Sáu sár­in sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár lið­in frá frá­falli Emblu Arn­ars Katrín­ar­dótt­ur. And­lát henn­ar var harma­fregn fyr­ir sam­fé­lag­ið, en fjöl­skyld­an sat eft­ir með sorg­ina. Löngu áð­ur en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orð­ið ljóst að hún væri orð­in al­var­lega veik, en vegna þess hve þög­ul veik­ind­in voru tók tíma að fá áheyrn. Jafn­vel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörð­uð á fimmtán ára af­mæl­is­dag­inn sinn.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár