Oddvitum flokkanna í Reykjavík sem mynduðu meirihluta í Viðey í morgun var tíðrætt um sterk tengsl sín á milli.
„Við erum fólk á svipaðri línu,“ sagði Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, og nýr forseti borgarstjórnar.
Aðeins tvo daga tók að mynda meirihlutasamkomulag og ein stærsta spurningin var, eins og í kosningunum, hvort þau væru á sömu línu varðandi svokallaða borgarlínu, lykilhlutann í samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, sem nú verður endurskoðaður í „samtali“.
„Á milli þeirra oddvita sem hér standa ríkir mikið traust og mikill trúnaður,“ sagði Hildur Björnsdóttir borgarstjóri, sem setur hefur í átta ár í borgarstjórn í minnihluta.
Björg sagði nýja meirihlutann vera „hóp nýrra stjórnmálamanna“. Undir það tók Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins og nú formaður borgarráðs, sem sagði þau vera „nýja kynslóð stjórnmálamanna“. Hann sagði þetta „tímamót í sögu Reykjavíkur“.
„Niðurstaða kosninganna var mjög afgerandi. Fólk vill nýtt upphaf í Reykjavík,“ sagði Einar Þorsteinsson, en flokkur hans tapaði mestu fylgi á milli ára, missti þrjá af fjórum fulltrúum og fór úr í 18,7% fylgi í 6,9%.
Hildur valdi að mynda eins manns meirihluta með tveimur flokkum, þar af einum sem sleit meirihluta á síðasta kjörtímabili, í stað þess að velja samstarf við einn flokk, Miðflokkinn.
Aðeins tvo daga tók að móta samstarfið. Áður hafði verið haft á orði að oddvitar þessara þriggja flokka og Samfylkingarinnar til viðbótar, væru af svipuðum meiði. Hildur sagði traustið lykilatriði. „Og það skiptir máli inn í kjörtímabilið sem er framundan vegna þess að við erum að koma úr kjörtímabili mikils óstöðugleika.“
Þau þrjú eiga marga sameiginlega þræði.

Keimlíkur ferill oddvita
Hildur Björnsdóttir er fædd 1986 og hefur setið í borgarstjórn frá árinu 2018. Hún var formaður stúdentahreyfingarinnar Vöku, eins og Einar Þorsteinsson, og formaður Stúdentaráðs. Þegar hún var barn ætlaði hún sér að verða forsætisráðherra. Hildur útskrifaðist úr Verzlunarskólanum 2006. Hún tók BA-gráðu í stjórnmálafræði, eins og Björg og Einar, en bætti við sig lögfræðinni og héraðsdómslögmannsréttindum, eins og margir meðlimir Sjálfstæðisflokksins. Hún er búsett í Vesturbænum í póstnúmeri 107.
Björg Magnúsdóttir er fædd ári fyrr, 1985, gekk líka í Verzlunarskólann, tók einnig BA-próf í stjórnmálafræði en til viðbótar meistaragráðu í hagnýtri menningarmiðlun. Hún var formaður Stúdentaráðs fyrir Röskvu, sem eru talin samtök vinstrisinnaða stúdenta. Þá er hún athafnastjóri hjá Siðmennt, búsett í Smáíbúðahverfinu í póstnúmeri 108.
Einar Þorsteinsson er fæddur 1978, gekk í Menntaskólann í Reykjavík, lærði stjórnmálafræði, eins og Björg, en var í stjórn Vöku, félags hægrisinnaðra nemenda. Hann býr í Seljahverfinu, í póstnúmeri 109.
Einar var skráður í Sjálfstæðisflokkinn lengi vel og var formaður Félags ungra sjálfstæðismanna í Kópavogi áður en hann hóf störf á Ríkisútvarpinu, þar sem hann vann á tímabili ásamt Björgu Magnúsdóttur, sem síðar átti eftir að verða aðstoðarmaður hans eftir kosningasigur Framsóknar í borginni 2022. Athygli vakti að á meðan hún sinnti því starfi mætti hún á hverfafund Sjálfstæðisflokksins.























































Athugasemdir