Oddviti Miðflokksins, Ari Edwald, verður nýr stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, samþykki hann boð Hildar Björnsdóttur, nýs borgarstjóra í Reykjavík. Hann tekur þá við af hagfræðiprófessornum Gylfa Magnússyni.
Hildur Björnsdóttir, nýr borgarstjóri Reykjavíkur, tilkynnti þetta rétt í þessu við myndun nýs meirihluta borgarstjórnar í Viðey með Framsóknarflokki og Viðreisn.
„Í síðustu vikur og í viðræðum síðustu daga þá höfum við fengið að kynnast þeim reynslumikla manni sem Ari Edwald er og mér finnst ekki annað hægt en að nýta hans krafta og reynslu í þágu borgarbúa og Reykvíkinga og ég mun gera það að tillögu minni að hann taki við stjórnarformennsku í Orkuveitu Reykjavíkur,“ sagði Hildur. „Þar eru mörg ærin verkefni sem bíða og hans reynsla og þekking mun nýtast vel á þeim vettvangi.“
Ari Edwald hefur margs konar reynslu úr atvinnulífinu.
Ari var framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Sem slíkur sagði hann samtökin úr náttúruverndarsamtökunum Landvernd árið 2002. „Samtök atvinnulífsins geta ekki starfað með samtökum sem taka jafn einhliða afstöðu gegn nýtingu orkulinda landsins, eins og fram hefur komið að undanförnu,“ sagði hann þá í yfirlýsingu.
Síðar varð hann framkvæmdastjóri fjölmiðlafélagsins 365, fyrirrennara Sýnar.
Hann var forstjóri MS frá árinu 2015 og þurfti sem slíkur að svara fyrir samkeppnisbrot félagsins.
Ari fór í tímabundið leyfi frá Ísey útflutningi, dótturfélagi Auðhumlu, eiganda Mjólkursamsölunnar 2022 og var sagt upp störfum í kjölfarið.
Ari er 62 ára gamall lögfræðingur og rekstrarhagfræðingur. Hann var áður meðlimur í Sjálfstæðisflokknum og búsettur í Portúgal, en flutti sig um set og flokk fyrir framboð á vegum Miðflokksins í vor.
Orkuveita Reykjavíkur er íslenskt sameignarfyrirtæki í eigu Reykjavíkurborgar, Akranesbæjar og Borgarbyggðar. Hún skilaði 11,5 milljarða króna hagnaði í fyrra.
Sjálfstæðisflokkurinn hafði á stefnuskrá sinni að selja kolefnisföngunarfélagið Carbfix og innviðafélagið Ljósleiðarann úr Orkuveitunni.
Í samtali við Ríkisútvarpið segir Ari að Hildur hafi hringt í hann um tíu mínútum fyrir kynningu meirihlutasamstarfsins í morgun og boðið honum stöðuna, en að hann hefði ekki enn tekið afstöðu til þess.

























































Athugasemdir