Forseti og forsætisráðherra Líbanons sökuðu Ísrael í dag um stríðsglæp eftir að líbönsk blaðakona lést í loftárás í suðurhluta landsins, þar sem ísraelskar hersveitir hafa hernumið nokkur svæði.
Björgunarsveitir og vinnuveitandi blaðakonunnar staðfestu í gær andlát Amal Khalil, 42 ára blaðakonu sem starfaði fyrir líbanska dagblaðið Al-Akbar.
Almannavarnir sögðu að hún hefði látist í árás á hús í þorpinu al-Tiril.
„Ísrael ræðst vísvitandi á blaðamenn til að hylma yfir sannleikann um glæpi sína gegn Líbanon,“ sagði Joseph Aoun forseti í yfirlýsingu þar sem hann fordæmdi „stríðsglæpi“.
Nawaf Salam forsætisráðherra skrifaði á X að „árásir á blaðamenn og hindrun á aðgangi björgunarsveita sé stríðsglæpur“ og bætti við að ríkisstjórn hans myndi vísa árásinni til alþjóðastofnana.
Tíu daga vopnahlé hefur verið í gildi í Líbanon síðan á föstudag, sem gerir hlé á stríðinu milli Ísraels og Hezbollah-hreyfingarinnar sem er hliðholl Íran, en yfir 2.400 manns hafa fallið í Líbanon.
Khalil og annar blaðamaður höfðu leitað skjóls í húsi í al-Tiri eftir að ísraelsk loftárás beindist að bíl fyrir framan þá, að sögn líbönsku ríkisfréttastofunnar (NNA).
Þar kom fram að báðir farþegar bílsins, bæjarstjórinn í nálægum bæ, Bint Jbeil, sem er hernuminn af Ísrael, og maður með honum, hefðu látist.
Ísraelsk árás beindist þá að húsinu þar sem blaðamennirnir tveir höfðu leitað skjóls.
Heilbrigðisráðuneytið sagði að árásin hefði sært blaðakonuna Zeinab Faraj, sem var flutt á sjúkrahús, og að Khalil væri föst.
Embættismaður líbanska Rauða krossins hafði sagt AFP að þeim hefði „tekist að bjarga Zeinab Faraj“ en hefðu ekki náð til Khalil og hörfað „vegna viðvörunarárásar“.
Líbönsk yfirvöld urðu að hafa samband við friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna sem staðsettir eru í Suður-Líbanon og það tók nokkrar klukkustundir áður en björgunarsveitir fengu aftur aðgang að svæðinu til að ná líki blaðakonunnar úr rústunum.
Heilbrigðisráðuneytið sakaði Ísrael í dag um að „hindra björgunaraðgerðir“ og „ráðast á sjúkrabíl sem var greinilega merktur Rauða krossinum“.
Ísraelsher sagði í yfirlýsingu að hann hefði „greint tvö ökutæki í Suður-Líbanon sem höfðu farið frá hernaðarmannvirki sem Hezbollah notaði“.
Flugherinn gerði þá árás á ökutæki sem flutti „hryðjuverkamenn“, að því er fram kom, sem höfðu farið yfir það sem Ísrael kallar „fremstu varnarlínu“ í Suður-Líbanon og nálgast hersveitir sínar.
Ísrael segist hafa komið á „gulri línu“, eða fremstu varnarlínu, djúpt inn í Suður-Líbanon þar sem hersveitir þeirra hafa farið inn og hindrað íbúa í að snúa aftur.
Herinn neitaði því að hafa komið í veg fyrir að björgunarsveitir fengju „aðgang að svæðinu“ og sagði að atvikið væri í rannsókn.
Khalil, sem var þekkt fyrir hugrekki sitt og virt af samstarfsfólki sínu, hafði fjallað um ýmis stríð á svæðinu.
Þann 28. mars létust þrír blaðamenn í ísraelskri loftárás í suðurhlutanum og sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna kölluðu eftir alþjóðlegri rannsókn.

















































Athugasemdir