Sagði Valkyrjurnar vilja Guðmund burt úr embætti annars biði hans stríð

Aðstoð­ar­kona Guð­mundar Inga Krist­ins­sonar, fyrr­ver­andi barna- og mennta­mála­ráð­herra, sendi honum skila­boð þar sem fram kom að hann þyrfti að segja af sér, hinn val­kost­ur­inn væri stríð.

Sagði Valkyrjurnar vilja Guðmund burt úr embætti annars biði hans stríð
Guð­mundur Ingi Krist­ins­son Guð­mundur Ingi Krist­ins­son hefur birt skila­boð þar sem kemur fram í tali aðstoð­ar­konu hans að val­kyrj­urnar vilji hann burt, ann­ars megi hann búast við stríði. Mynd: Golli

Aðstoð­ar­kona Guð­mundar Inga Krist­ins­sonar, Guðbjörg Ingunn Magn­ús­dóttir, sendi afar­kosti á Guðmund Inga þar sem honum voru boðnir tveir kostir: að segja af sér emb­ætti mennta- og barna­mála­ráð­herra eða fara í stríð.

Þetta kemur fram í umfjöllun RÚV í dag þar sem smá­skila­boð Guð­bjargar til Guð­mundar eru birt.

Skila­boðin fékk hann þann 7. jan­úar síð­ast­lið­inn og voru send í gegnum Signal, sem er dulkóðað sam­skipta­for­rit. Guð­mundur Ingi sak­aði for­mann Flokks fólks­ins, Ingu Sæland, um að hafa bolað sér úr emb­ætti gegn sínum vilja eftir skurð­að­gerð sem hann gekkst undir í des­em­ber.

Því hefur Inga hafnað.

Guð­mundur Ingi sagði af sér emb­ætti og hætti í flokknum skömmu síðar. Hann hefur setið utan flokka á Alþingi síðan en lýst yfir stuðn­ingi við rík­is­stjórn­ina. 

Í skila­boðum Guð­bjargar sem birt eru á RÚV segir orð­rétt: „Þessi ákvörðun er ein­göngu val­kyrj­anna en ekki þeirra sem sitja eftir í flokknum. [...] En fyrst svona er komið þá er hægt að fara tvær leiðir – til­kynna veik­inda­leyfi og að þú munir snúa til baka á Alþingi þegar þú hefur heilsu til eða fara í stríð.“

Skila­boðinGuðbjörg Ingunn Magn­ús­dóttir, sendi afar­kosti á Guðmund Inga

Leið­togar rík­is­stjórn­ar­innar, þær Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra og Inga Sæland, mennta- og barna­mála­ráð­herra, fengu snemma við­ur­nefnið Val­kyrj­urnar. 

Fyrr í skila­boð­unum vísar Guðbjörg jafn­framt til sam­tals Guð­mundar Inga við mann að nafni Sigurjón. „Sigurjón hringdi mig og sagði mér frá sam­tal­inu ykkar,“ skrifar hún. Sigurjón sem þar er vísað til er að öllum lík­indum Sigurjón Arn­órs­son, aðstoð­ar­maður Ingu Sæland.

Spurning um upplifun

Inga Sæland sagði í við­tali á RÚV, þegar Guð­mundur steig fram í sept­em­ber og sak­aði hana um að hafa bolað sér úr emb­ætti, að hún upp­lifði sam­skipti sín við Guðmund Inga með allt öðrum hætti. Hún hafn­aði því að honum hefði verið gert að segja af sér.

„Nei, ég gerði honum ekk­ert slíkt. Hann er að lýsa sinni upp­lifun og ég virði það, en hún er allt önnur en upp­lifun mín,“ sagði Inga í við­tal­inu.

Í frétt RÚV kemur fram að Guð­mundur Ingi hafi sagt í sam­tali við frétta­stofu að skila­boðin hefðu verið hótun. Öllum hafi verið ljóst að hann vildi ekki láta af emb­ætti.

„Það var bara verið að hóta mér stríði.“
Guð­mundur Ingi Krist­ins­son
fyrr­ver­andi ráð­herra

„Það var verið að setja mér afar­kosti og það hafði þegar verið gert. Það átti að gera mér það alveg ófært að vera áfram ráð­herra.“

Guð­mundur Ingi segir að sig hafi snemma farið að gruna að vilji væri fyrir því að skipta honum út úr rík­is­stjórn. Hann seg­ist virða þá ákvörðun en honum blöskrar hvernig farið var að því að bera ákvörð­un­ina undir hann og fá hans sam­þykki. „Það er alvar­legt mál þegar for­maður flokks sendir aðstoð­ar­mann sinn til að segja mér hvernig ég eigi að segja af mér,“ sagði Guð­mundur.

Þá hafi honum brugðið við skila­boðin frá sínum aðstoð­ar­manni. „Það var bara búið að ræða þetta og ákveða það og ef ég myndi berj­ast gegn því þá yrði það bara stríð. Það var bara verið að hóta mér stríði.“

Hann segir sér hafa verið stillt upp við vegg og þess vegna ákveðið að verða við því að hætta.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son tók skömmu síðar við emb­ætti félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, sam­hliða því að Inga tók við ráðu­neyti Guð­mundar Inga. Guðbjörg Ingunn, sem sendi Guðmundi skila­boðin þar sem honum voru settir fram tveir kostir, er eig­in­kona Ragnars Þórs.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Vinnubrögð spillingarelítunnar. Ef hentar þá er bara að Ljúga, ljúga, ljúga og ljúga enn meira.

    Viðurstyggileg vinnubrögð og nú bið ég Guðmund Inga Kristinsson innilega afsökunar á þvi að hafa talið hann ljúga. Sennilega er hann ekki nægjanlega útspekúleraður og lyginn til að geta gegnt embætti ráðherra.

    Fyrirgefðu Guðmundur🙏
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Átök í Flokki fólksins

StjórnmálÁtök í Flokki fólksins

„Kannast ekki við þá mynd sem hefur verið dregin þar upp“

Guðrún Haf­steins­dóttir krafði Ingu Sæland svara um hver hafi ákveðið afsögn Guð­mundar Inga Krist­ins­sonar úr rík­is­stjórn. Í skila­boðum sem aðstoð­ar­kona hans sendi honum í jan­úar sagði að ákvörð­unin hefði verið tekin af „val­kyrj­unum“. Inga segir þau Guðmund Inga greina á um aðdrag­anda máls­ins og stendur við sínar ákvarð­anir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár