Svartsýni eykst á ný í samfélaginu

Vænt­inga­vísi­tala Gallup lækkar um 24,2 stig milli mán­aða og mælist nú 51,5 stig. Mælingin tekur til mats Íslend­inga á efna­hags­líf­inu og atvinnu­mögu­leikum og vænt­inga til næstu sex mán­aða. Verð­bólga hefur auk­ist, Seðla­bank­inn hækk­aði vexti í ágúst og atvinnu­leysi er meira en fyrir ári.

Svartsýni eykst á ný í samfélaginu
Á nið­ur­leið Vænt­ingar Íslend­inga til næstu sex mán­aða mæl­ast nú minni en fyrir mán­uði síðan. Það má segja að vænt­ingar hafi hrunið. Mynd: Golli

Hækkun vænt­inga­vísi­tölu Gallup í ágúst reynd­ist skamm­vinn. Vísi­talan mælist 51,5 stig í sept­em­ber, sam­an­borið við 75,7 stig í ágúst, og hefur því lækkað um 24,2 stig á einum mán­uði. Hún er jafn­framt tæpum 33 stigum lægri en í sept­em­ber í fyrra.

Vísi­talan hefur verið í kringum 50 stig stærstan hluta árs­ins. Við 100 stig eru jafn margir jákvæðir og nei­kvæðir svar­endur, en undir þeim mörkum eru nei­kvæðir svar­endur fleiri. Sept­em­ber­mæl­ingin sýnir því að svart­sýni er enn ríkj­andi meðal þeirra sem tóku afstöðu til spurn­inga könn­un­ar­innar. 

Mælingin tekur bæði til mats fólks á efna­hags­líf­inu og atvinnu­mögu­leikum núna og vænt­inga þess til næstu sex mán­aða. Fólk er spurt hvort það telji heild­ar­tekjur heim­il­is­ins muni aukast, standa í stað eða minnka. Í úrtak­inu eru Íslend­ingar 18 ára og eldri af öllu land­inu og nið­ur­stöð­urnar eru vegnar eftir kyni, aldri og búsetu.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár