Verðbólga mælist 5,9 prósent – hærri virðisaukaskattur á eldsneyti vegur þungt

Vísi­tala neyslu­verðs hækk­aði um 0,39 pró­sent í sept­em­ber. Hag­stof­an met­ur að hækk­un virð­is­auka­skatts á bens­ín og dísel hafi ein og sér hækk­að vísi­töl­una um 0,32 pró­sentu­stig. Lækk­un flug­far­gjalda vó á móti.

Verðbólga mælist 5,9 prósent – hærri virðisaukaskattur á eldsneyti vegur þungt
Hækkun Tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti gekk til baka í byrjun september. Hagstofan segir þó bensín og dísel hafi hækkað óháð þeirri breytingu. Mynd: Heiða Helgadóttir

Verðbólga mælist nú 5,9 prósent, samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,39 prósent milli ágúst og september. Án húsnæðis hækkaði vísitalan um 0,40 prósent milli mánaða og hefur hækkað um 5,7 prósent síðustu tólf mánuði.

Verðbólga hefur ekki mælst hærri síðan í ágúst árið 2024, fyrir meira en tveimur árum síðan.

Verð á bensíni hækkaði um 16,1 prósent í september og verð á dísel um 18,1 prósent. Hækkanirnar höfðu samanlagt 0,43 prósentustiga áhrif til hækkunar á vísitölu neysluverðs.

Tímabundin lækkun virðisaukaskatts á bensín og dísel rann út 1. september og fór skatturinn þá úr 11 í 24 prósent. Hagstofan metur það sem svo að sú breyting ein og sér hafi hækkað vísitölu neysluverðs um 0,32 prósentustig. Eldsneyti hefði þó hækkað í verði án skattbreytingarinnar, samkvæmt útreikningum stofnunarinnar.

Á móti eldsneytishækkununum lækkuðu flugfargjöld til útlanda um 11,7 prósent. Sú lækkun dró vísitöluna niður um 0,37 prósentustig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Fulltrúi Íslands sat áfram meðan tugir gengu úr salnum undir ræðu Netanyahu
4
Stjórnmál

Full­trúi Ís­lands sat áfram með­an tug­ir gengu úr saln­um und­ir ræðu Net­anya­hu

Tug­ir full­trúa gengu úr saln­um þeg­ar Benja­mín Net­anya­hu, for­sæt­is­ráð­herra Ísra­els, hóf ræðu sína á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna. Full­trúi Ís­lands sat áfram í sæti lands­ins. Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir ut­an­rík­is­ráð­herra var á sama tíma á fundi til stuðn­ings Palestínuflótta­manna­hjálp SÞ.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
2
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár