Ísraelar hertaka skóla Sameinuðu þjóðanna

Skóli flóttamanna­hjálpar Sameinuðu þjóðanna, sem veitir 340 Palestínu­mönnum starfs­menntun á hverju ári, hefur verið yfir­tekinn af Ísrael í því skyni að „rýma hann“. Byggingar SÞ eiga að njóta friðhelgi.

Áhlaup á skóla
Áhlaup á skóla Ísra­els­her hand­tekur palest­ínskan mann í áhlaupi á starfs­mennta­skóla UNRWA, sem er stað­settur á milli Kafr Aqab-hverf­is­ins og Qalandia-flótta­manna­búð­anna, sunnan við borg­ina Ramallah á Vest­ur­bakk­anum, í dag.Ísra­elska lög­reglan gerði áhlaup á starfs­mennta­skóla sem rek­inn er af stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna fyrir palest­ínska flótta­menn í inn­lim­uðu aust­ur­hluta Jer­úsalem, en ráð­herra úr röðum öfga­hægri­manna sagði aðgerð­ina miða að því að „fjar­lægja“ stofn­un­ina af svæð­inu. Aðgerðin fylgir í kjöl­far ítrek­aðra aðvar­ana frá UNRWA um að ísra­elsk yfir­völd ógn­uðu mennta­skóla stofn­un­ar­innar. Mynd: AFP

Ísraelsher tók yfir starfs­menntaskóla á vegum Palestínu­flóttamanna­aðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) í úthverfi í austur­hluta Jerúsalem í dag, en það er nýjasta aðgerðin sem beinist að stofnuninni sem á undir högg að sækja.

Árásin var fordæmd af Antonio Guterres, aðal­framkvæmda­stjóra Sameinuðu þjóðanna, og kom í kjölfar viðvarana frá UNRWA um að ísraelsk yfirvöld ógnuðu Qalandia-mennta­skólanum, sem er stað­settur á milli Kafr Aqab-hverfisins í austur­hluta Jerúsalem og Qalandia-flóttamanna­búðanna.

Skólinn var stofnaður árið 1952 og veitir um 340 Palestínu­mönnum frá hernumda Vestur­bakkanum starfs­menntun á hverju ári, að sögn UNRWA.

„Í samræmi við fyrirmæli mín og í kjölfar laganna sem við samþykktum, hófst í dag rýming á lóð UNRWA í Kafr Aqab í Jerúsalem,“ sagði í yfir­lýsingu frá skrif­stofu Benjamins Netanyahu forsætis­ráðherra.

„Ísraels­ríki mun ekki leyfa stofnun, þar sem starfs­menn tóku þátt í hryðju­verkum og fjölda­morðunum 7. október, að starfa innan land­svæðis síns og mun beita öllum tiltækum ráðum …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útþensla Ísraels

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár