Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskatt

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og sjö aðrir þing­menn reyna nú aftur að afnema erfða­fjár­skatt. Þau vísa meðal ann­ars til OECD en stofn­unin hefur einnig fært sterk rök fyrir skatt­lagn­ingu þegar um stóran arf er að ræða. Það á til að mynda við um það þegar eig­in­kona Sig­mundar fékk rúman millj­arð króna í fyr­ir­fram­greiddan arf sem fór síðar inn í aflands­fé­lagið Wintris.

Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskatt
Skatt­laust Sig­mundur Davíð reynir nú í annað sinn að fá erfða­fjár­skatt afnumdann og leyfa fjár­munum og eignum að ganga skatt­frjálst á milli kyn­slóða. Mynd: Golli

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, og sjö aðrir þing­menn leggja til að erfða­fjár­skattur verði afnum­inn. Þeir vilja að Alþingi feli fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra að und­ir­búa frum­varp þess efnis.

Tillagan er lögð fram í annað sinn og er óbreytt frá síð­asta þingi, þar sem hún náði ekki fram að ganga. Með­flutn­ings­menn Sig­mundar eru allir þing­menn Mið­flokks­ins, þau Bergþór Ólason, Ingi­björg Dav­íðs­dóttir, Karl Gauti Hjalta­son, Sigríður Á. Andersen, Snorri Másson, Þor­grímur Sig­munds­son og Nanna Margrét Gunn­laugs­dóttir.

Erfða­fjár­skattur er nú tíu pró­sent. Við hefð­bundin dán­ar­bús­skipti eru fyrstu 6,8 millj­ónir króna af skatt­stofni dán­ar­bús skatt­frjálsar árið 2026 og makar eru und­an­þegnir skatt­inum. Skatt­frels­is­mörkin gilda hins vegar ekki þegar um fyr­ir­fram­greiddan arf er að ræða og þá er skatt­ur­inn lagður á allt verð­mæti eign­anna sem afhentar eru.

Segja skattinn fela í sér tvísköttun

Í grein­ar­gerð til­lög­unnar færa þing­menn­irnir meðal ann­ars þau rök …

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Erfðafjárskattur getur hæglega verið verulega ósanngjarn. Til dæmis þegar arfurinn er fasteign þar sem erfingjarnir bjuggu og ólust upp og vilja halda í. þá er alls ekki víst að erfingjarnir hafi efni á því að greiða 10 % af verðmæti fasteignarinnar og gætu neiðst til að selja eignina. Sama gildir um bújarðir þar sem afkomendurinir hafa áhuga á að halda áfram með búskapin.

    Ef það vex einhverjum í augum að fólk sé að erfa stórar upphæðir þá má kannski ráðast á rót þess, sem er að það er fullt af fólki að þéna óeðlilega háar upphæðir dags daglega. Mætti ekki skattleggja ofurtekjur hærra, til dæmis með 50% skatti til samfélagsins og þá á ég við allar ofurtekjur, líka fjármagnstekjur, hagnað og arð.
    0
  • Björn Grétar Sveinsson skrifaði
    i mínum huga er erfðafjárskattur með betri sköttum að vísu er ég mikill skattamaður vegna þess að ég þykist skilja hvernig við höldum velferðar og menningar samfélagi eins og okkar gangandi
    8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár