Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskatt

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og sjö aðrir þingmenn reyna nú aftur að afnema erfðafjár­skatt. Þau vísa meðal annars til OECD en stofnunin hefur einnig fært sterk rök fyrir skatt­lagningu þegar um stóran arf er að ræða. Það á til að mynda við um það þegar eiginkona Sigmundar fékk rúman milljarð króna í fyrir­fram­greiddan arf sem fór síðar inn í aflands­fé­lagið Wintris.

Skattlaust
Skatt­laust Sig­mundur Davíð reynir nú í annað sinn að fá erfða­fjár­skatt afnumdann og leyfa fjár­munum og eignum að ganga skatt­frjálst á milli kyn­slóða. Mynd: Golli

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, og sjö aðrir þingmenn leggja til að erfðafjár­skattur verði afnuminn. Þeir vilja að Alþingi feli fjármála- og efnahags­ráðherra að undirbúa frumvarp þess efnis.

Tillagan er lögð fram í annað sinn og er óbreytt frá síðasta þingi, þar sem hún náði ekki fram að ganga. Meðflutningsmenn Sigmundar eru allir þingmenn Miðflokksins, þau Bergþór Ólason, Ingibjörg Davíðs­dóttir, Karl Gauti Hjaltason, Sigríður Á. Andersen, Snorri Másson, Þorgrímur Sigmundsson og Nanna Margrét Gunnlaugs­dóttir.

Erfðafjár­skattur er nú tíu prósent. Við hefð­bundin dánarbús­skipti eru fyrstu 6,8 milljónir króna af skatt­stofni dánarbús skatt­frjálsar árið 2026 og makar eru undan­þegnir skattinum. Skatt­frelsis­mörkin gilda hins vegar ekki þegar um fyrir­fram­greiddan arf er að ræða og þá er skatturinn lagður á allt verðmæti eignanna sem afhentar eru.

Segja skattinn fela í sér tvísköttun

Í greinar­gerð tillög­unnar færa þing­mennirnir meðal annars þau rök …

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Erfðafjárskattur getur hæglega verið verulega ósanngjarn. Til dæmis þegar arfurinn er fasteign þar sem erfingjarnir bjuggu og ólust upp og vilja halda í. þá er alls ekki víst að erfingjarnir hafi efni á því að greiða 10 % af verðmæti fasteignarinnar og gætu neiðst til að selja eignina. Sama gildir um bújarðir þar sem afkomendurinir hafa áhuga á að halda áfram með búskapin.

    Ef það vex einhverjum í augum að fólk sé að erfa stórar upphæðir þá má kannski ráðast á rót þess, sem er að það er fullt af fólki að þéna óeðlilega háar upphæðir dags daglega. Mætti ekki skattleggja ofurtekjur hærra, til dæmis með 50% skatti til samfélagsins og þá á ég við allar ofurtekjur, líka fjármagnstekjur, hagnað og arð.
    0
  • Björn Grétar Sveinsson skrifaði
    i mínum huga er erfðafjárskattur með betri sköttum að vísu er ég mikill skattamaður vegna þess að ég þykist skilja hvernig við höldum velferðar og menningar samfélagi eins og okkar gangandi
    8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár