Barnalæknir vill sykurskatt og afslátt af grænmeti

Tryggvi Helga­son, sér­fræð­ing­ur í offitu barna, var­ar við „áhlaupi iðn­að­ar­ins“ vegna til­rauna til að skatt­leggja syk­ur.

Barnalæknir vill sykurskatt og afslátt af grænmeti
Tryggvi Helgason Sem sérfræðingur í offitu barna segir Tryggvi Helgason barnalæknir að hærra verð á sykri sé rétta leiðin. Mynd: Davíð Þór

Sykurskattur er aftur kominn í umræðu á Íslandi eftir að Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra og fyrrverandi landlæknir, lagði fram þingsályktunartillögu með það að markmiði að Ísland yrði ekki lengur með mestu offitu meðal barna af öllum Norðurlöndunum. Í þingsályktunartillögunni er fyrsti liður aðgerða að innleiða hagræna hvata í samræmi við ráðleggingar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) til þess að sporna gegn vaxandi tíðni offitu, sérstaklega meðal barna.

Tryggvi Helgason, barnalæknir og sérfræðingur í offitu barna, segir í nýrri grein í Læknablaðinu að „ein best viðurkennda aðferðin til að minnka tíðni offitu í heiminum [sé] að stýra verði á sykri.“ Enda sé það fyrsta tillaga þingsályktunarinnar.

Tryggvi vísar þar í að „fjölmargar þjóðir“ hafi tekið upp verðstýringu á sykri „með góðum árangri, minni sykurneyslu og minni sykurnotkun í matariðnaði“. Hann leggur til að ábatinn af slíkum skatti yrði nýttur „til að fjármagna niðurgreiðslu á hollum matvælum eins og ávöxtum eða grænmeti“.

Tryggvi barnalæknir gerir ráð fyrir þrýstingi gegn skattlagningu á sykruðum matvælum. „Það verður spennandi að fylgjast með hvort yfirvöldum tekst að standast áhlaup iðnaðarins. Læknisfræðin, vísindin, siðfræðin, hagfræðin, lífeðlisfræðin og alþjóðaráðleggingar eru á einu máli,“ segir hann og skorar á hagsmunaaðilana. „Gaman væri að fá iðnaðinn í lið með lýðheilsunni. Niðurgreiddur sykur er ekki samfélagslega skynsamlegur og að hafa sykur áfram ódýran er ekki í takt við þekkingu nútímans.“

Viðskiptaráð varaði við sykurskatti í áliti sínu í febrúar á þeim forsendum að þeir væru „óhentugt stjórntæki, hafi takmörkuð áhrif á neyslu og heilsufarslegar útkomur og geti aukið flækjustig og kostnað í skatta- og regluumhverfi.“

Sykurskattur var lagður á í tíð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur en afnuminn undir ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar 2015, þegar Bjarni Benediktsson var fjármálaráðherra. Við svo búið lækkaði verð á sykri, súkkulaði, sælgæti og fleiru um 4,6%. Á sama tíma var matarskattur hækkaður úr 7% í 11% og því hækkuðu önnur matvæli í verði. Þessi breyting gengur hins vegar gegn ráðleggingum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, sem segir í skýrslu sinni að minnst 114 lönd skattleggi sykraða gosdrykki.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lýðheilsa

Íslenskir „Olíuvinir“ í keðju umdeilds fyrirtækis
FréttirLýðheilsa

Ís­lensk­ir „Olíu­vin­ir“ í keðju um­deilds fyr­ir­tæk­is

Yf­ir 800 manns eru í sölu­keðju Young Li­ving ilm­kjarna­ol­íu á Ís­landi. Fyr­ir­tæk­ið sæt­ir hóp­mál­sókn í Banda­ríkj­un­um fyr­ir pýra­mída­s­vindl og sögðu sölu­menn vör­urn­ar geta lækn­að Ebóla-smit. Ís­lensk­ar kon­ur sem dreifa vör­un­um segja tengslamark­aðs­setn­ingu nauð­syn­lega til að kenna fólki um virkni ilm­kjarna­ol­íu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Fólk er hrætt”
1
Viðtal

„Fólk er hrætt”

„Ef þú býrð í landi þar sem ver­ið er að fylgj­ast með þér, þá er það veru­leiki sem þú þarft að díla við,” seg­ir Magnús Þorkell Bern­harðs­son, Mið-Aust­ur­landa­fræð­ing­ur við Williams Col­l­e­ge í Banda­ríkj­un­um og gesta­pró­fess­or við guð­fræði- og trú­ar­bragða­fræði­deild HÍ – sem ný­ver­ið flutti hér á landi fyr­ir­lestra, ann­an um Ír­an og eld­fimt ástand vegna inn­rás­ar þar, hinn um að­þrengt aka­demískt frelsi í Banda­ríkj­un­um.
„Það hentar þeim ekki að almenningur í landinu vakni“
3
Viðtal

„Það hent­ar þeim ekki að al­menn­ing­ur í land­inu vakni“

Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir ut­an­rík­is­ráð­herra seg­ir Sjálf­stæð­is­flokk og Mið­flokk beita áróðri gegn Evr­ópu­sam­bands­að­ild sem komi beint úr hand­bók Nig­el Fara­ge. Segi þjóð­in „já“ geti Ís­land orð­ið að­ild­ar­ríki í árs­lok 2028 en ef „nei“ verð­ur svar­ið komi það til kasta Al­þing­is að draga um­sókn­ina frá 2009 til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Greiddu fyrrverandi oddvita 7 milljónir eftir að Framsókn fékk bæjarstjórastólinn
5
Stjórnmál

Greiddu fyrr­ver­andi odd­vita 7 millj­ón­ir eft­ir að Fram­sókn fékk bæj­ar­stjóra­stól­inn

Ný­stofn­að fé­lag Ág­ústs Bjarna Garð­ars­son­ar, fyrr­ver­andi odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins í Hafnar­firði, fékk greiðsl­ur fyr­ir ráð­gjafa­störf eft­ir að flokks­bróð­ir hans, Valdi­mar Víð­is­son, tók við sem bæj­ar­stjóri. Ráð­gjafa­störf fyrr­um bæj­ar­stjóra Mos­fells­bæj­ar, Har­ald­ur Sverris­son, hóf­ust í tíð Rósu Guð­bjarts­dótt­ur, flokks­syst­ur hans.
Frjálshyggjumenn úr viðskiptalífinu gefa „þekktum hugsuðum“ sviðið
6
Innlent

Frjáls­hyggju­menn úr við­skipta­líf­inu gefa „þekkt­um hugs­uð­um“ svið­ið

Stjórn­end­ur Reykja­vík Fin­tech og Bæj­ar­ins Beztu Pyls­ur hafa stofn­að við­burða­fyr­ir­tæki eft­ir að hafa hald­ið fyr­ir­lestra með Jor­d­an Peter­son. Fyrstu við­burð­irn­ir eru með Frosta Sig­ur­jóns­syni um lofts­lags­mál og Bjórkast­inu, hlað­varpi þar sem stjórn­end­ur kenna sig við öfga­hægri og „kyn­þátt­ar­aun­sæi“.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár