„Þetta var það svívirðilegt“: Vilja á þriðja hundrað milljónir vegna njósna auðmanna

Lög­mað­ur­inn Ólaf­ur Krist­ins­son og fyrr­ver­andi þing­mað­ur­inn, Vil­hjálm­ur Bjarna­son, vilja á þriðja hundrað millj­ón­ir frá Björgólfi Thor og Birgi Má Ragn­ars­syni vegna njósna­máls.

„Þetta var það svívirðilegt“: Vilja á þriðja hundrað milljónir vegna njósna auðmanna
Björgólfur Thor Auðkýfingurinn játar að hafa greitt fyrir njósnir. Mynd:

„Þetta var það svívirðilegt að það er varla annað hægt,“ segir Ólafur Kristinsson, lögmaður sem hefur í félagi við Vilhjálm Bjarnason, fyrrverandi þingmann, stefnt Björgólfi Thor Björgólfssyni og Birgi Má Ragnarssyni fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur fyrir njósnir, brot á rétti  einkalífsins, umsáturseinelti og brot á persónuvernd. Málsóknin tengist umfjöllun Kveiks um PPP málið svokallaða. RÚV greindi fyrst frá málsókninni.

Forsaga málsins er sú að félagið PPP, sem var í eigu Jóns Óttars Ólafssonar, fyrrverandi lögreglumanns, og Guðmundar Hauks Gunnarssonar, var notað til þess að njósna um Vilhjálm og Ólaf árið 2012. Ástæðan var sú að Ólafur og Vilhjálmur voru í forsvari fyrir hóp sem stóð á bak við hópmálsókn gegn Björgólfi Thor í tengslum við fall Landsbankans í hruninu.

Í Kveiksþættinum kom fram að Björgólfur hefði talið þá vera handbendi Róberts Wessman, auðmennirnir tveir höfðu eldað grátt silfur og …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Hárrétt hjá Vilhjálmi, sem væntanlega og vonandi vinnur málið. Þessir náungar eru algerlega siðblindir í græðgi sinni. Njósnararnir eiga heldur ekki að sleppa.
    3
  • Maria Maack skrifaði
    Gott hjá strákunum.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Fólk er hrætt”
3
Viðtal

„Fólk er hrætt”

„Ef þú býrð í landi þar sem ver­ið er að fylgj­ast með þér, þá er það veru­leiki sem þú þarft að díla við,” seg­ir Magnús Þorkell Bern­harðs­son, Mið-Aust­ur­landa­fræð­ing­ur við Williams Col­l­e­ge í Banda­ríkj­un­um og gesta­pró­fess­or við guð­fræði- og trú­ar­bragða­fræði­deild HÍ – sem ný­ver­ið flutti hér á landi fyr­ir­lestra, ann­an um Ír­an og eld­fimt ástand vegna inn­rás­ar þar, hinn um að­þrengt aka­demískt frelsi í Banda­ríkj­un­um.

Mest lesið í mánuðinum

Greiddu fyrrverandi oddvita 7 milljónir eftir að Framsókn fékk bæjarstjórastólinn
6
Stjórnmál

Greiddu fyrr­ver­andi odd­vita 7 millj­ón­ir eft­ir að Fram­sókn fékk bæj­ar­stjóra­stól­inn

Ný­stofn­að fé­lag Ág­ústs Bjarna Garð­ars­son­ar, fyrr­ver­andi odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins í Hafnar­firði, fékk greiðsl­ur fyr­ir ráð­gjafa­störf eft­ir að flokks­bróð­ir hans, Valdi­mar Víð­is­son, tók við sem bæj­ar­stjóri. Ráð­gjafa­störf fyrr­um bæj­ar­stjóra Mos­fells­bæj­ar, Har­ald­ur Sverris­son, hóf­ust í tíð Rósu Guð­bjarts­dótt­ur, flokks­syst­ur hans.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár