Snorri lýsir vonbrigðum með Trump

Banda­ríkja­for­seti hótar eyð­ingu sið­menn­ingar. Brestir komnir í stuðn­ingi Mið­flokks­ins við Trump.

Snorri lýsir vonbrigðum með Trump
Snorri Másson Vara­for­maður Mið­flokks­ins tekur nú afstöðu gegn Donald Trump Banda­ríkja­for­seta. Mynd: Golli

Vara­for­maður Mið­flokks­ins, Snorri Másson, segir „vonir hafa brugð­ist“ varð­andi Donald Trump Banda­ríkja­for­seta, eftir að for­set­inn hót­aði í dag að „eyða sið­menn­ingu“ Írans.

Áður hafa sam­flokks­menn Snorra vakið máls á því að íslensk stjórn­völd eða Alþingi veiti Donald Trump verð­laun.

„Heil sið­menn­ing mun deyja í kvöld og verður aldrei end­ur­vakin,“ sagði Trump á sam­fé­lags­miðli sínum í dag, en úti­lok­aði ekki að „eitt­hvað dásam­legt“ myndi ger­ast sem fælist vænt­an­lega í því að það sem eftir er af írönskum stjórn­völdum ákveði að leyfa alla skipa­um­ferð um Hormuz-sund að nýju, en tepp­ing hennar eftir árás Banda­ríkj­anna og Ísraels á Íran hefur hækkað olíu­verð veru­lega.

Snorri Másson setur sig í fót­spor stuðn­ings­fólks Trumps þegar hann lýsir von­brigðum með hótun hans um eyði­legg­ingu sið­menn­ingar.

„Von­brigði og skiln­ings­leysi hljóta að vera ráð­andi til­finn­ingar hjá mörgum kjós­endum sitj­andi Banda­ríkja­for­seta, sem ósk­uðu sér breyttrar nálg­unar á landa­mærum, betri efna­hags og minna woke-brjál­æðis,“ segir Snorri í Facebook-færslu.

„Ekki síst kusu menn Trump þó vegna boð­aðrar frið­ar­nálg­unar í stað frek­ari inn­gripa Banda­ríkja­hers á ver­ald­ar­svið­inu. Ekki aðeins hafa þessar vonir brugð­ist, heldur er farið af fullum þunga í þver­öf­uga átt og frum­kvæði haft að stig­magn­andi styrj­ald­ar­á­tökum.“

Þá lýsir Snorri áhyggjum af hern­að­ar­að­gerðum á óþekktum skala í nútím­anum.

„Nú síð­ast virð­ist for­set­inn vera að bera fram hót­anir um hern­að­ar­að­gerðir á óþekktum skala í nútíma­sög­unni, sem gætu orðið upp­hafið að atburða­rás sem eng­inn veit hvar endar. Allra helst vonar maður að þetta séu inn­an­tómar hót­anir Banda­ríkja­for­seta sem er kom­inn í krappa stöðu og að í stað­inn setj­ist menn við samn­inga­borðið, en það afsakar aldrei þennan óboð­lega mál­flutn­ing.“

Meðal ann­arra íhalds­samra stjórn­mála­manna sem hafa tekið afstöðu gegn Trump, þrátt fyrir fyrri stuðn­ing, eru Nigel Farage, for­maður Umbóta­flokks­ins í Bret­landi.

Formaðurinn vildi veita Trump verðlaun

Karl Gauti Hjalta­son, þing­maður Mið­flokks­ins, lagði að for­seta Alþingis í haust að til­nefna Donald Trump til frið­ar­verð­launa Nóbels úr pontu Alþingis.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, hefur ekki tjáð sig um yfir­lýs­ingar Trumps nú, en um pásk­ana gagn­rýndi hann aftur íslenska utan­rík­is­ráð­herr­ann fyrir að mis­takast að efla nægi­lega vel sam­starf við Banda­ríkin á sviði varn­ar­mála.

Síðasta haust vakti Sig­mundur máls á því í ræðu­stól á Alþingi að Banda­ríkin hefðu fest sig í sessi sem „leið­andi ríki í alþjóða­málum“. Hann spurði með hvaða hætti for­sæt­is­ráð­herra hyggð­ist efla tengslin við Banda­ríkin „og styrkja sam­starf við þau í sessi“.

„Ég held það færi vel á því að bjóða Banda­ríkja­for­seta til Íslands. Veita honum kannski ein­hver verð­laun“
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son
Á Alþingi 14. októ­ber 2025 í fyr­ir­spurn til for­sæt­is­ráð­herra

Þá þrýsti Sig­mundur á for­sæt­is­ráð­herra að eiga nán­ara sam­band við Trump og bjóða honum til Íslands.

„Mér skilst að hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra hafi ekki enn leit­ast við að ná beinu tal­sam­bandi við for­seta Banda­ríkj­anna. Verður for­seta Banda­ríkj­anna jafn­vel boðið til Íslands? Hér á Íslandi eru margir áhuga­verðir golf­vellir. Á sumrin er hægt að spila mið­næt­ur­golf. Og ég held það færi vel á því að bjóða Banda­ríkja­for­seta til Íslands. Veita honum kannski ein­hver verð­laun og efla og styrkja sam­starf þess­ara ríkja, ekki veitir af að hafa öfl­uga banda­menn þegar við horfum upp á vand­ræða­gang vina okkar í Evrópu.“

Snorri varð ósáttur í jan­úar síð­ast­liðnum þegar Sigmar Guð­munds­son, þing­maður Við­reisnar, gagn­rýndi sendi­herra­efni Banda­ríkj­anna á Íslandi fyrir að grín­ast með að ger­ast lands­stjóri, mitt í hót­unum Banda­ríkja­for­seta um að taka Grænland með valdi.

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HH
    Hjörtur Herbertsson skrifaði
    Ég ætla nú að vona að forsætisráðherra sé ekki svo vitlaus að bjóða þessum vitleysing til Íslands, eins og miðflokksmenn óska eftir.
    2
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Æ æ er verið að yfirgefa sökkvandi skip. Kannski ekki mjög "POPULAR" að tengja sig of mikið við þann gamla appelsínugula.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár