Kristrún Frosta­dóttir Sótti leið­toga­fund NATO í Hollandi 24. júní síð­ast­lið­inn. Mynd: AFP

Sigmundur vill Trump til Íslands - Kristrún segir Bandaríkin „velkomin með“

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, þrýsti á að Donald Trump yrði boðið til Íslands og honum veitt verð­laun. Hann sak­aði Kristrúnu Frosta­dóttur um að vera aftengd raun­veru­leik­anum. Kristrún hefur beðið um fund með Trump.

Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði á Alþingi í dag að Banda­ríkin væru „vel­komin með“ í umræðu um fjár­fest­ingu og inn­viða­upp­bygg­ingu, ásamt Færeyjum, Græn­landi og Kanada.

Þetta segir hún í svari við óund­ir­búnni fyr­ir­spurn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar á Alþingi í dag, þar sem hann þrýsti á nán­ari sam­skipti við Donald Trump Banda­ríkja­for­seta og lagði til að Kristrún styrkti sam­bandið við hann með því að bjóða honum í golf eða í opin­bera heim­sókn.

Kristrún seg­ist hafa hitt Trump tvisvar. „Við höfum ekki ennþá átt tví­hliða form­legan fund með Banda­ríkja­for­seta. Ég hef hins vegar hitt Banda­ríkja­for­seta í tvö skipti og átt í svona stuttum sam­ræðum við for­seta og nefnt þar sér­stak­lega áhuga okkar á frek­ari sam­skiptum, frek­ari við­skiptum, frek­ari fjár­fest­ingu og styrkja varn­ar­inn­viði hér. Skila­boðin sem hafa komið frá íslenskri stjórn­sýslu og líka póli­tík­inni, ef við tökum þessi sam­töl með, hafa verið mjög skýr. Þau hafa verið að við viljum áfram starfa mjög náið með Banda­ríkja­mönnum og það að við séum að starfa náið með þjóðum sem eru í Evrópu, þjóðum sem eru utan Evr­ópu­sam­bands­ins, eins og Noregi, úti­lokar einmitt ekki þessi sam­skipti við Banda­ríkin.“ 

Sig­mundur fagn­aði aðkomu Banda­ríkj­anna að vopna­hléssamn­ingum í Palest­ínu og sagði að Ísland væri í ein­stakri stöðu í sam­bandi við Banda­ríkin, sem hefðu aftur fest sig í sessi sem „leið­andi ríki í alþjóða­málum“. Hann spurði með hvaða hætti for­sæt­is­ráð­herra hyggð­ist efla tengslin við Banda­ríkin „og styrkja sam­starf við þau í sessi“.

„Mér skilst að hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra hafi ekki enn leit­ast við að ná beinu tal­sam­bandi við for­seta Banda­ríkj­anna. Verður for­seta Banda­ríkj­anna jafn­vel boðið til Íslands? Hér á Íslandi eru margir áhuga­verðir golf­vellir. Á sumrin er hægt að spila mið­næt­ur­golf. Og ég held það færi vel á því að bjóða Banda­ríkja­for­seta til Íslands. Veita honum kannski ein­hver verð­laun og efla og styrkja sam­starf þess­ara ríkja, ekki veitir af að hafa öfl­uga banda­menn þegar við horfum upp á vand­ræða­gang vina okkar í Evrópu.“

Mælti gegn ásælni Trumps í Grænland

Kristrún var einn þeirra for­sæt­is­ráð­herra Norð­ur­land­anna sem and­mæltu ásælni Donalds Trump í Grænland í maí síð­ast­liðnum, sem hann hefur neitað að úti­loka að tekið verði með valdi og inn­limað í Banda­ríkin. 

„Ísland er rétt fyrir neðan Grænland. Við erum lítið land,“ sagði hún. „Það er mjög mik­il­vægt fyrir okkur að það séu sterk skila­boð frá svæð­inu um að alþjóða­lögum sé fylgt og að afl komi ekki í stað laga og réttar,“ sagði hún.

Í kjöl­farið hafa bein sam­skipti NATO-þjóða óháð Banda­ríkj­unum færst í auk­ana. Kristrún vís­aði til þess. „Við höfum mik­inn hug á því að efla tengslin líka hér á svæð­inu, sem eru okkar bak­grunnur, norð­ur­slóðir, og þess vegna hef ég verið í virku sam­bandi við Fær­ey­inga, við Græn­lend­inga, átti nú síð­ast tví­hliða fund með for­sæt­is­ráð­herra Kanada, þar sem við vorum einmitt að ræða mögu­leika þess að fá fleiri lönd inn í fjár­fest­ingar og inn­viða­upp­bygg­ingu á svæð­inu og Banda­ríkin eru vel­komin þar með,“ sagði Kristrún.

Leið­toga­fundur NATOKristrún Frosta­dóttir hitti Donald Trump Banda­ríkja­for­seta á leið­toga­fundi NATO í júní. Hér sést Banda­ríkja­for­seti fyrir miðið og for­sæt­is­ráð­herra lengst til vinstri.

„Skortur á veruleikatengingu“

Sig­mundur sagði „það ekki duga að segja að Banda­ríkin séu vel­komin að vera með ef þau vilja.“ Hann sak­aði Kristrúnu um firr­ingu frá raun­veru­leik­anum.

„Það virð­ist vera ein­hver skortur á veru­leika­teng­ingu hjá þess­ari rík­is­stjórn, sem boð­aði það nýverið að Ísland ætti að vera leið­andi í varn­ar­málum á norð­ur­slóðum. Er ekki orðið tíma­bært að ná raun­veru­leika­teng­ingu hjá þess­ari rík­is­stjórn? Gera sér grein fyrir því að Banda­ríkin hafa jú aftur fest sig í sessi með fyrri hætti sem leið­andi afl á alþjóða­vísu. Voru kannski dalandi sem slíkt um tíma, en hafa ræki­lega stimplað sig inn aftur. Og þá dugar ekki að spjalla við menn sem menn hitta á göng­unum á alþjóða­fundum eða halda lyftufund og segja að Ísland vilji gjarnan vilja vinna vel með Banda­ríkj­unum.“

Bað um fund með Trump

„Við erum vinir Banda­ríkj­anna. Ég hef ekk­ert á móti sterk­ari og öfl­ugri sam­skiptum við Banda­ríkin. Öll sam­skipti hafa átt sér stað á öllum lögum íslenskrar stjórn­sýslu hafa verið jákvæð gagn­vart Banda­ríkj­unum,“ sagði Kristrún í and­svari við áeggjan Sig­mundar.

Hún sagði langt síðan for­sæt­is­ráð­herra Íslands hefði átt tví­hliða fund með for­seta Banda­ríkj­anna. „Símtal?“ kall­aði Sig­mundur tvisvar inn í fram­sögu Kristrúnar, sem sagði „mjög jákvætt að eiga í sam­skiptum við þau“ og bætti við: „Við munum efla þau nánar.“

„Með sím­tali?“ spurði Sig­mundur og svar­aði Kristrún því til að beiðni lægi fyrir um fund með Banda­ríkja­for­seta. „Við fylgjum því fast eftir.“

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MB
    Magnús Bjarnason skrifaði
    Sigmundur gefst ekki upp. Honum leiðist að vera ekki í stjórn, sem vonlegt er. En hvaða gagn gera upphrópanir hans?? Hann forðast að vitna til staðreynda og tekur ekki mark á andsvörum. Athyglisvert.
    2
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Væri ekki nær að senda Sigmund til Trumps?
    3
  • JL
    Jón Logi skrifaði
    Meðvirkni evrópuleiðtoga með jólasveininum í hvíta húsinu tekur seint enda.
    2
  • Grétar Reynisson skrifaði
    „ veita honum kannski einhver verðlaun “ 🙄
    0
    • MB
      Magnús Bjarnason skrifaði
      Væri ekki rétt að veita Sigmundi verðlaun í leiðinni, bara einhver.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár