Ósáttur við gagnrýnina á innlimunargrín sendiherraefnis Bandaríkjanna

Billy Long, sendi­herra­efni Banda­ríkj­anna á Íslandi, grín­að­ist með að Ísland yrði inn­limað í Banda­ríkin. Snorri Másson er ósáttur við gagn­rýni Sigmars Guð­munds­sonar á sendi­herra­efnið og sakar hann um „ofsa“.

Ósáttur við gagnrýnina á innlimunargrín sendiherraefnis Bandaríkjanna
Snorri Másson Var­for­maður Mið­flokks­ins taldi rangt að gagn­rýna sendi­herra­efnið fyrir grín um inn­limun Íslands. Mynd: Golli

Snorri Másson, vara­for­maður Mið­flokks­ins, hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann lýsir óánægju með að Sigmar Guð­munds­son, þing­maður Við­reisnar, hafi gagn­rýnt sendi­herra­efni Banda­ríkj­anna á Íslandi fyrir að grín­ast með að inn­lima Ísland í Banda­ríkin og ger­ast rík­is­stjóri. 

Sendi­herra­efnið, Billy Long, hefur stað­fest að hafa gant­ast með að verða rík­is­stjóri Íslands í kjöl­far inn­limunar, í sam­hengi við einka­sam­tal um að gera Jeff Landry, erind­reka Banda­ríkj­anna gagn­vart Græn­landi, rík­is­stjóra þess eftir fyr­ir­hug­aða inn­limun lands­ins í Banda­ríkin, sem er opin­ber stefna banda­rískra stjórn­valda þrátt fyrir and­stöðu lands­manna.

„Aumk­un­ar­verð við­brögð við gríni,“ segir Snorri í yfir­lýs­ingu sinni.

Sigmar sagði á Alþingi í morgun að grínið væri ekki fyndið, heldur alvar­legt. „Þetta er að sjálf­sögðu ekk­ert sér­stak­lega fyndið grín í ljósi þeirrar umræðu sem núna er í gangi vest­an­hafs um Grænland. Og reyndar eru þetta eig­in­lega ummæli sem eru frekar alvar­leg. En þetta segir okkur kannski ansi mikið, því miður, um það virð­ing­ar­leysi sem er að grafa um sig í Banda­ríkj­unum gagn­vart full­veldi smárra ríkja. Það þarf ekk­ert að hafa mörg orð um það að þetta er gríð­ar­lega alvar­legt fyrir lítið land eins og Ísland.“

Utan­rík­is­ráðu­neytið fór í fram­hald­inu fram á skýr­ingar frá sendi­ráði Banda­ríkj­anna, sem leiddi til þess að Long baðst afsök­unar á orðum sínum og sagði þau ekki meint í alvöru.

Snorra mis­bjóða athuga­semdir Sigmars. „Við Íslend­ingar erum sjálf­stæð og full­valda þjóð en höfum á síð­ari tímum vita­skuld ekki farið var­hluta af póli­tískri og menn­ing­ar­legri nýlendu­stefnu heims­veldis Banda­ríkj­anna,“ skrifar hann í yfir­lýs­ingu. Hann segir Íslandi líkt við Wyoming, sem er eitt af fámenn­ustu ríkjum Banda­ríkj­anna.

„Slík eru áhrifin á flestum sviðum okkar sam­fé­lags að sumir hafa leyft sér að líkja Íslandi við Wyoming, fámenn­asta fylki Banda­ríkj­anna. Þar er auð­vitað ekki síður vísað til hins djúpa og langvar­andi sam­starfs Íslend­inga og Banda­ríkj­anna á sviði utan­ríkis- og varn­ar­mála.“

Hann virð­ist gefa til kynna að Ísland sé nú þegar á mörkum sjálf­stæðis.

„Í þessu nána sam­bandi er stundum spurt hvort ekki sé á því bita­munur fremur en fjár, að við höldum velli sem sjálf­stæð þjóð í stað þess að ger­ast bara form­legur hluti heims­veld­is­ins. Sem betur fer hefur þessi spurn­ing á okkar tímum aldrei verið annað en grín, enda kemur ekk­ert annað til greina af okkar hálfu en fullt sjálf­stæði okkar full­valda þjóðar um aldur og ævi.“

Snorri ávítur síðan Sigmar fyrir athuga­semdir hans og gefur til kynna að flokkur hans, Viðreisn, geti lítið sagt um full­veldi vegna stuðn­ings við aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. „Út af fyrir sig er það nátt­úru­lega grín að tals­maður Við­reisnar fari mik­inn um full­veldi smárra ríkja í ljósi áforma flokks hans um stöðu Íslands. Hitt er þó ekk­ert grín, að það sem er að öllum lík­indum póli­tísk oftúlkun Sigmars á ummælum sendi­herr­ans felur í sér kol­röng og raunar eilítið aumk­un­ar­verð við­brögð við gríni.“

Sigmar Guð­munds­sonÞing­maður Við­reisnar gagn­rýndi að sendi­herra­efni Banda­ríkj­anna grín­að­ist með að inn­lima landið og ger­ast rík­is­stjóri yfir því.

Segir Snorri að til þess að gagn­rýna beri slík orð sendi­herra­efn­is­ins þurfi að vera alvara að baki því að inn­lima Ísland og ger­ast rík­is­stjóri. „Ef eitt­hvað væri sem benti til alvöru í ummælum sendi­herr­ans, væri það sann­ar­lega grafal­var­legt mál. Því þyrftu íslensk stjórn­völd að mæta af fullum þunga. En að gefa sér án betri upp­lýs­inga að grín­inu fylgi alvara hefur ekki önnur áhrif en þau að ljá fjar­stæðu­kenndum hug­myndum um yfir­ráð Banda­ríkj­anna yfir Íslandi lög­mæti. Slík umræða er ekki annað en grín og við skulum ekki tala öðru­vísi.“

Þá sakar hann Sigmar um ofsa. „Öllu heldur væri ósk­andi á þessum síð­ustu og verstu tímum að hags­muna­gæsla okkar Íslend­inga á sviði þjóð­anna gæti ein­kennst af still­ingu, yfir­vegun og ein­arðri varð­stöðu um full­veldið, en ekki af upp­gerð­ar­við­kvæmni og hug­mynda­fræði­legum ofsa.“

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (8)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÓG
    Ólafur Gunnarsson skrifaði
    Tilvonandi sendiherra fór bara í föt forsetans,er einhver svo illa haldinn að trúa því að forsetinn taki ekki Ísland ef hann ætlar sér það og sendiherrann hefur örugglega heyrt tal um slíkt en átti kanski ekki að vera að blaðra.
    0
  • HH
    Hjörtur Herbertsson skrifaði
    Hver er þessi Snorri, er hann Trump maður?
    3
    • Margrét Sólveig Ólafsdóttir skrifaði
      Já, manni sýnist að Miðflokkurinn sé nokkuð hrifinn af Trump.
      2
  • Jóhanna Halldóra Steindórsdóttir skrifaði
    Það virðist vera hans skoðun að það væri fint að vera 52.fylki i BNA
    2
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Ekki með öllu útilokað, að Snorri Már sé dálítið veikur fyrir hugmyndinni um 52. ríki Bandaríkjanna.
    7
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Snorri er á pari við Stefán Einar Stefánsson. Hver vull hafa þá í sínu liði? Ekki ég!
    6
  • Einar Skúli Hjartarson skrifaði
    kom þessi maður aftan ú grárri.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
6
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár