„Við þurfum að draga einhverja línu í sandinn“

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir segir VG standa á tíma­mótum, vilja end­ur­heimta skýra rödd í grænum málum, félags­legu rétt­læti og frið­ar­stefnu – og hafnar því að svarið við sam­tím­anum felist í harð­ari hægri orð­ræðu eða gam­al­dags stór­iðju­stefnu.

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, nýr for­maður Vinstri­hreyf­ing­ar­innar – græns fram­boðs, segir flokk­inn ætla að hefja nýjan kafla eftir erfitt tíma­bil í rík­is­stjórn og fall af þingi. Að hennar mati er nú að mynd­ast tóma­rúm í íslenskum stjórn­málum þar sem græn sjón­ar­mið, félags­legt rétt­læti, frið­ar­póli­tík og mann­rétt­indi hafi veikst eða verið sett til hliðar af öðrum flokkum.

„Erindi VG í dag, það er í raun og veru mjög skýrt,“ segir hún. Hún nefnir sér­stak­lega að VG hafi lengi verið það afl sem hafi talað hvað skýr­ast fyrir umhverf­is­málum og grænni póli­tík, en að nú sjá­ist í íslenskri umræðu að „það er eitt­hvert rými þar sem græn póli­tík er ekki til staðar“. 

Hún segir hið sama gilda um félags­legt rétt­læti, frið­ar­mál og kven­rétt­indi. Að hennar mati hafi bæði stjórn­ar­flokk­arnir og aðrir flokkar verið að yfir­gefa þessi mál og þar með skap­ist þörf fyrir skýr­ari rödd vinstra megin. „Þar komum við til …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Maria Maack skrifaði
    Ég vona að ég lesi ekki hér á mili línanna að VG ætli ekki aftur í ríkisstjórn. Það sem VG gerði helst í síðustu tíð sinni var að taka ekki t.d. orkumál á dagskrá og semja sig á eitthvað ásættanlegt, sameiginlegt og íslenskt í stað þess að segja algjörlega og endanlegt NEI við öllum tillögum. Það þarf að setja náttúruvernd inn í allar framkvæmdir, ekki segja nei við öllum framkvæmdum!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár