Fylgist með fram­kvæmd­unum Á fundi um Venes­ú­ela í jan­úar var for­set­inn mynd­aður þar sem hann fylgd­ist með fram­kvæmdum við veislu­sal í Aust­ur­álmu Hvíta húss­ins, sem hann segir nú að sé yfir­varp fyrir gríð­ar­stórt neð­an­jarð­ar­byrgi. Mynd: AFP

Trump byggir risastórt byrgi undir Hvíta húsinu

Banda­ríkja­for­seti segir bygg­ingu veislu­sals í Hvíta hús­inu vera yfir­varp fyrir gríð­ar­stórt byrgi sem hann lætur grafa fyrir undir bygg­ing­unni.

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur und­an­farið látið í það skína að umdeildur veislu­salur sem hann reisir í Aust­ur­álmu Hvíta húss­ins sé í reynd yfir­varp fyrir gríð­ar­stórt neð­an­jarð­ar­byrgi sem hýsa á lyk­il­fólk í stjórn­kerf­inu, eins og hann sjálfan, ef til stór­á­taka kemur.

Vinnu­flokkar hafa grafið fyrir byrg­inu í margar vikur og rifið niður eldri neyð­ar­að­gerða­mið­stöð for­set­ans, eða PEOC, sem var byggð í seinni heims­styrj­öld­inni til að vernda for­set­ann, til að byggja eitt­hvað stærra, betra og dýpra neð­an­jarðar.

Á sunnu­dag sagði Trump í sam­tali við frétta­menn um borð í Air Force One  að hann sæi fyrir sér 8.400 fer­metra veislu­sal sinn sem „skúr“ yfir neð­an­jarð­ar­byrgið.

Veislu­sal­ur­innDonald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, heldur á teikn­ingu af end­ur­bótum á Aust­ur­álm­unni þar sem hann ræðir við frétta­menn um borð í for­seta­flug­vél­inni á leið til Joint Base Andrews í Maryland þann 29. mars 2026.

Veislusalurinn sé vörn gegn árásum

„Herinn er að byggja gríð­ar­stóra aðstöðu undir veislu­salnum, og hún er í bygg­ingu, og okkur gengur mjög vel,“ sagði Trump.

Að sögn Trumps mun byrgið inni­halda sprengju­byrgi og „mjög mik­il­væga sjúkra­stofnun“, þar á meðal sjúkra­hús. Það verði sér­út­búið fyrir nýj­ustu öruggu sam­skipta­að­ferð­irnar og varnir gegn líf­rænum vopnum.

Hann sagði að veislu­sal­ur­inn myndi vernda neð­an­jarð­armann­virkið fyrir drónum, byssu­kúlum og öðrum árásum. „Þetta er hágæða skot­helt gler. Þannig að allir glugg­a­rnir eru skot­heldir,“ sagði Trump.

Í síð­ustu viku, þegar for­set­inn ræddi um veislu­sal­inn á rík­is­stjórn­ar­fundi, sagði hann að her­inn vildi mest allra að verk­efnið yrði klárað.

Dómari stöðv­aði verk­efnið í vik­unni, með til­vísun í að þingið þyrfti að sam­þykkja það, þótt fram­kvæmdir séu löngu hafnar, og hefur Trump af þeirri ástæðu rætt um örygg­is­á­stæð­urnar. Dómarinn var skip­aður af George W. Bush, sem var Repúblikani eins og Trump.

Fram­kvæmdir við Hvíta húsiðWashington, DC, Banda­ríkj­unum, 23. jan­úar 2026. Séð frá Washington-minn­is­merk­inu heldur nið­ur­rif á Aust­ur­álmu Hvíta húss­ins og að því er virð­ist hinnar leyni­legu neyð­ar­að­gerða­mið­stöðvar for­set­ans, eða PEOC, áfram og á að byggja dans­sal­inn á þessum stað.
Fram­kvæmdir við Hvíta húsiðVeislu­sal­ur­inn átti að kosta 300 millj­ónir Banda­ríkja­dala og vera fjár­magn­aður með fram­lögum auð­manna og fyr­ir­tækja.

„Við erum að byggja sprengjubyrgi“

Áfrýjun Trumps byggir á því að fram­fylgja megi fram­kvæmdum sem tryggja öryggi og vernd Hvíta húss­ins án sér­staks sam­þykkis þings­ins.

„Við erum með líf­rænar varnir út um allt,“ sagði Trump við frétta­menn í for­seta­skrif­stof­unni í vik­unni, sam­kvæmt til­vitnun New York Times. „Við erum með örugg fjar­skipti og sam­skipti út um allt. Við erum að byggja sprengju­byrgi. Við erum að byggja sjúkra­hús og mjög mik­il­væga sjúkra­stofnun. Við erum með allt þetta. Þannig að það þýðir: Mér er heim­ilt að halda áfram að byggja.“

Trump fór í dag fram á við þingið að hern­að­ar­út­gjöld yrðu aukin um 42% á sama tíma og skorið yrði niður í útgjöldum til vel­ferð­ar­mála og ann­arra útgjalda um 10%.

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið undanfarið ár