Hótar að fangelsa blaðamann og „taka út“ allt Íran

Banda­ríkja­for­seti leitar að leka­manni sem hafi látið vita að flug­maður týnd­ist í Íran.

Hótar að fangelsa blaðamann og „taka út“ allt Íran
Trump og Hegseth Banda­ríkja­for­seti og stríðs­mála­ráð­herra lýsa björg­un­ar­að­gerð í Íran rétt í þessu. Mynd: AFP

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, sagði á blaða­manna­fundi í dag að blaða­maður sem fjall­aði um að banda­rískur flug­maður væri týndur í Íran, yrði fang­els­aður ef hann gefur ekki upp heim­ild­ar­mann sinn. Þá sagð­ist hann geta „tekið út allt Íran“.

Trump sagði að stjórn hans myndi nálg­ast fjöl­miðla­fyr­ir­tækið og blaða­mann sem fjall­aði um að banda­ríski flug­mað­ur­inn væri týndur og hóta þeim fang­elsun.

„Við munum fara til fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins sem gaf þetta út og við munum segja: Þjóðar­ör­yggi, gefðu það upp eða farðu í fang­elsi.“

Þannig verði heim­ild­ar­manns­ins leitað. „Við þurfum að finna þennan leka­mann, það er sjúk mann­eskja.“

Þá ítrek­aði hann að blaða­mað­ur­inn ætti að gefa upp heim­ildir sínar eða vera hand­tek­inn.

„Mann­eskjan sem gerði frétt­ina fer í fang­elsi ef hún segir ekki frá.“

Flug­mað­ur­inn var annar tveggja sem var í flug­vél sem var skotin niður í aðgerð­inni sem Trump­stjórnin kallar Epíska bræði. Flug­mað­ur­inn faldi sig í helli. Banda­ríski flug­her­inn í sam­starfi við CIA not­aði 170 loft­för til þess að finna flug­mann­inn.

Bæði stríðs­mála­ráð­herr­ann og for­stjóri CIA hrós­aði leið­toga­hæfni Trumps í hví­vetna og þakk­aði Guði. 

„Flug­mað­ur­inn end­ur­fæddur, þjóð sem fagnar. Guð er góður,“ sagði Pete Hegseth stríðs­mála­ráð­herra. „Þeir voru ban­vænir,“ sagði Hegseth um banda­rísku her­menn­inna og sagði að Íranir sem reyndu að nálg­ast flug­mann­inn hefðu mætt „dauða að ofan“.

„Við erum fullir lotn­ingar,“ sagði Pete Hegseth um Trump for­seta.

Trump sagði einnig á fund­inum að hægt væri að „taka út“ allt Íran á morgun þegar frestur sem hann gaf íslamska lýð­veld­inu til að opna aftur hið mik­il­væga Hor­mússund rynni út.

„Það væri hægt að taka út allt landið á einni nóttu og sú nótt gæti verið á morgun,“ sagði Trump á blaða­manna­fundi í dag.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Páll Guðfinur Gústafsson skrifaði
    Hótar að fangelsa blaðamenn fyrir að segja frá… og talar svo um að „taka út heilt land“ á morgun.

    Þetta er orðið ansi einfalt.
    ef þér líkar ekki fréttirnar – þá hótarðu fjölmiðlum, og ef þér líkar ekki ríki – þá hótarðu að eyða því.

    Algjör „leiðtogahæfni,
    allt leyst með hótunum og HÁSTÖFUM á Truth Social.
    5
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Halda Kanarnir að þeir geti komið klerkastjórninni í Íran frá meðan þeir ráða ekki einu sinni við sína eigin. Það er illa komið fyrir þjóð þegar örlög hennar velta orðið á geðþótta og skapsmunum æðsta "klerksins" og hvernig honum gekk á salerninu þann daginn.
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár